Skoðun

Meðferð við fíknsjúkdómi er dýrmæt

Valgerður Rúnarsdóttir skrifar
Fíknsjúkdómurinn er sjálfstæður, langvinnur heilasjúkdómur með alvarlegum afleiðingum. Við honum eru til sérhæfðar meðferðir. Hindranir fyrir því að leita sér meðferðar eru miklar, stundum gríðarlegar hjá einstaklingnum sjálfum og getur farið illa. Einangrun og sjálfsásakanir eru oft áberandi meðal sjúklinganna. Fordómar hins veika eru oft mestir. Nauðsynlegt er að halda áfram að stýra þessum líffræðilega sjúkdómi inn í heilbrigðiskerfið og sinna honum þar, þrátt fyrir að hann hafi jafnframt slæmar félagslegar og persónulegar afleiðingar.

Aðgengi að meðferð er afar mikilvægt. Á Íslandi fá fleiri meðferð en í flestum löndum sem við þekkjum til. En þar er líka kvartað mikið yfir „treatment gap“, þ.e. að flestir sem þurfa meðferð fá hana ekki, allt upp í 90%. Við erum betur stödd, samt fá ekki allir meðferð sem þurfa hér. Enn eru fordómar og enn leitar fólk sér ekki hjálpar þótt vandinn vaxi.

SÁÁ veitir mikla meðferð og leggur sjúklinga inn á Vog, oftar en 2.000 sinnum á ári. Stór hluti rekstrarkostnaðar SÁÁ kemur beint frá almenningi, með framlögum, styrkjum, álfasölu og fleiru sem Íslendingar hafa tekið svo vel undir öll þessi ár. Takk fyrir það. Það er mikil þörf og við viljum hafa þennan kost að geta leitað í meðferð þegar á þarf að halda. Án beins stuðnings almennings væri það framboð fátæklegt.

Það er mikilvægt að passa vel upp á það sem við höfum og gengur vel. Meðferðir sem SÁÁ býður upp á eru margþættar og sinna þessum sjúkdómi á mismunandi stigum og með mismunandi leiðum. Batinn er í áföngum og krefst sífells aðhalds.

Fjöldinn sem hægt er að sinna, vegna SÁÁ, er mikill. Það er dýrmætt. Meðferðin er ekki fyrir fáa, heldur alla sem sækja og þurfa á henni að halda. Fjöldinn er styrkur. Flestir þurfa lítið inngrip, meðferð á Vogi, eftirmeðferð í göngudeild eða Vík/Staðarfelli, þetta er stuttur tími. Aðrir þurfa endurtekningu, aðra meðferð samhliða, lyfjameðferð, áfangahús o.fl. Það er líka svigrúm fyrir það, og það er líka dýrmætt. Fjölskylda fíkla, börn, systkini, foreldrar, makar, geta fengið meðferð á göngudeild SÁÁ einnig. Það er dýrmætt.

Fíknsjúkdómurinn brennur á mörgum fjölskyldum, og flestir koma beint eða óbeint að þeim fjölbreytta vanda sem hann veldur. Á sama hátt er bati frá fíknsjúkdómi og þeir möguleikar í lífinu sem hann getur veitt, mörgum hugleikinn. Það er hvetjandi til að auka í fremur en draga úr, þegar rætt er um meðferð og önnur inngrip til að styðja til bata. Þetta er meðbyr og skilningur sem SÁÁ finnur frá almenningi og fagfólki í hversdagsleikanum, en ekki síst í álfavikunni vor hvert.

Takk fyrir stuðninginn við SÁÁ, við meðferð alkóhólista og annarra fíkla, enn á ný.

Gleðilegt sumar.

Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is




Skoðun

Sjá meira


×