Aukinn þungi færður í leitina sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 26. desember 2015 12:53 Brúðan var sett í vatnið og fylgdu þyrlurnar henni eftir. vísir/magnús hlynur
Aukinn þungi hefur verið færður í leit að manni sem talið er að hafi fallið í Ölfusá á Selfossi í nótt. Skilyrði til leitar eru ágæt, en þó er mikil hálka sem hefur gert leitarmönnum nokkuð erfitt fyrir, að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns á Hvolsvelli. „Það er ágætis veður. Það er sleipt yfir árbakkanum og svona klakabunkar þannig að það þarf bara að fara varlega. Þetta er stór hópur sem kemur frá öllu Suðurlandi og einnig frá höfuðborgarsvæðinu,“ segir Sveinn. Tugir hafa komið að leitinni frá björgunarsveitum, lögreglu og slökkviliði og kallaður var út liðsauki frá höfuðborgarsvæðinu í morgun. Þá hafa þyrlur Landhelgisgæslunnar sveimað um svæðið í dag. Einnig var notuð brúða sem þyrlurnar fylgdu eftir, til að sjá hvert hana rekur. „Leitin gengur ágætlega. Við bættum í töluvert af fólki klukkan tíu í birtingu, og í raun lítið um það að segja annað en að það er verið að leita og verður leitað áfram í dag,“ segir Sveinn. Tilkynning barst lögreglu klukkan tuttugu mínútur í þrjú í nótt og upphófst þá leit að manninum við árbakka Ölfusár, en bíll hans fannst skammt frá Selfosskirkju. Leit að manninum hefur verið afar umfangsmikil en hún er meðal annars gerð í samvinnu við fjölskyldu mannsins.Björgunarmenn fylgjast með gangi mála.vísir/magnús hlynurvísir/magnús hlynurLeitarsvæðið kortlagt.vísir/magnús hlynur
Tengdar fréttir Víðtæk leit að manni við Ölfusá Talið er að hann hafi fallið í ána. 26. desember 2015 09:32 Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Sjá meira