Innlent

Víðtæk leit að manni við Ölfusá

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Brúin yfir Ölfusá.
Brúin yfir Ölfusá. vísir/ernir
Víðtæk leit stendur nú yfir í og við Ölfusá á Selfossi, en talið er hugsanlegt að karlmaður hafi fallið í ána í nótt. Bíll mannsins fannst skammt frá Selfosskirkju og búið er að hafa samband við hans nánustu ættingja sem hjálpa til við leitina.

Tugir hafa komið að leitinni frá björgunarsveitum, lögreglu og slökkviliði og búið er að kalla út liðsauka frá björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur þyrla Landhelgisgæslunnar einnig verið fengin til að aðstoða við leitina.

Tilkynning barst lögreglu klukkan 02.40 og voru viðbragðsaðilar kallaðir út um leið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×