Erlent

Gary Glitter dæmdur í 16 ára fangelsi

Samúel Karl Ólason skrifar
Garry Glitter sýndi engin viðbrögð í dómsal þegar dómari las upp úrskurð sinn.
Garry Glitter sýndi engin viðbrögð í dómsal þegar dómari las upp úrskurð sinn. Vísir/EPA
Glamúrrokkstjarnan fyrrverandi Gary Glitter hefur verið dæmdur í 16 ára fangelsi. Hann var dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega gegn þremur stúlkum, átta til þrettán ára, á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Alls braut hann sex sinnum gegn stúlkunum þremur.

Glitter hefur neitað ásökunum, en hann var sýknaður af þremur brotum, samkvæmt frétt á vef Guardian.

Hann mun ekki hafa sýnt nein viðbrögð þegar dómarinn las upp úrskurð sinn, en dómarinn sagði hann hafa ollið varanlegum skaða á stúlkunum, sem þær finni enn fyrir í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×