Reykjavíkurborg: Rekstrarniðurstaða 1,8 milljörðum króna lakari en búist var við Atli Ísleifsson skrifar 27. ágúst 2015 13:21 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir niðurstöðuna ekki koma á óvart. Vísir/Stefán
Rekstrarniðurstaða A og B hluta Reykjavíkurborgar var jákvæð um 303 milljónir króna, en sex mánaða uppgjör borgarinnar var afgreitt í borgarráði í dag.Í tilkynningu frá borginni segir að rekstur borgarinnar sé nú þyngri, meðal annars vegna minni hagnaðar Orkuveitu Reykjavíkur og hækkun launakostnaðar umfram áætlun. „Uppgjörið sýnir jákvæða rekstrarniðurstöðu fyrir samstæðu Reykjavíkurborgar A og B hluta. Niðurstaðan var jákvæð um 303 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2.141 mkr. Rekstrarniðurstaðan er því 1.838 mkr lakari en gert var ráð fyrir. Ástæður þessa má rekja til minni hagnaðar Orkuveitu Reykjavíkur vegna lækkandi álverðs og hins vegar til lakari afkomu A hluta heldur en áætlun gerði ráð fyrir. Þar ræður hækkun launakostnaðar og minni sala á byggingarrétti mestu. Vert er að taka fram að Orkuveita Reykjavíkur hefur staðist Planið sem sett var upp og gott betur,“ segir í fréttinni.Dagur segir niðurstöðuna ekki koma á óvart„Niðurstaða sex mánaða uppgjörsins kemur ekki á óvart og undirstrikar að það er áskorun að eiga fyrir nýgerðum kjarasamningum og mikilvægi þess að árangur náist í endurmati á málaflokki fatlaðs fólks og daggjöldum hjá hjúkrunarheimilum, en um milljarð vantar upp á að ríkið láti þá fjármuni fylgja sem þarf vegna þessa. Mikil uppbygging framundan léttir þó undir og við munum taka skipulega og fast á fjármálunum, líkt og undanfarin ár,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 3 milljarða „Þrátt fyrir lakari afkomu fyrri hluta árs er eignastaða Reykjavíkurborgar þó áfram sterk. Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok tímabils samtals 513.207 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 292.812 mkr og eigið fé nam 220.395 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 11.744 mkr. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 42,9% en var 43,1% um síðustu áramót. Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 3.038 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.865 mkr á tímabilinu. Lakari rekstrarniðurstaða skýrist meðal annars af lægri tekjum af sölu byggingaréttar og sölu fasteigna eða 552 mkr undir áætlun og hækkun launakostnaðar umfram áætlun um 403 mkr. Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira