Listamaðurinn íhugar að óska eftir vernd vegna hótana frá Íslendingum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. apríl 2015 18:34 "Þetta er einfaldlega að verða of mikið,“ segir Marco Evaristti. vísir/marco evaristti
Síleski listamaðurinn Marco Evaristti, sem búsettur er í Danmörku, íhugar að óska eftir lögregluvernd þegar hann kemur hingað til lands vegna fjölda líflátshótana sem honum hafa borist undanfarna daga. Hann er sakaður um brot á náttúruverndarlögum en hyggst fara með mál sitt fyrir dómstóla á næstu vikum. Evaristti hellti á dögunum rauðu litarefni út í hverinn Strokk á Geysissvæðinu í Haukadal og vakti uppátækið mikið hneykslan hér á landi. Hann segist þó hafa vonast til þess því markmið hans hafi verið að vekja athygli á náttúrunni. Nú sjái hann að fólki sé ekki sama. Hann segir litarefnið þó með öllu skaðlaust og harmar því hversu reiðir Íslendingar hafi orðið.Hótanirnar aldrei orðið eins persónulegar „Ég verð að segja að ég er í miklu uppnámi yfir þessu. Ég er búin að fá svona 12-15 alvarlegar hótanir frá því að fyrstu fréttir um málið birtust. Það var hins vegar alveg vitað að þetta myndi vekja umtal, það gerir það alltaf en fólk hefur alltaf róað sig eftir að það fær að vita hvers vegna þetta var gert. Svo virðist ekki vera í þessu tilfelli,“ sagði hann í samtali við Vísi. Hann segist aldrei upplifað jafn mikla reiði á öllum sínum listamannaferli. „Það hafa alvarleg mál komið upp. Tvívegis hafa borist sprengjuhótanir en ég hef aldrei fengið svona persónulegar hótanir. Einungis gagnvart listinni sjálfri.“ Hótanirnar eru að hans sögn verulega grófar, honum er hótað lífláti og nauðgun og lýsingarnar ítarlegar. Þær fær hann sendar í einkaskilaboðum á Facebook, en einnig hafa afar hörð ummæli verið látin falla á opinni síðu hans. „Einn segir til dæmis að ef ég læt sjá mig á Íslandi þá verði andlit mitt málað með blóði,“ segir hann. Því votti fyrir dálítilli hræðslu. „Þetta er einfaldlega að verða of mikið,“ bætir hann við.Gullfiskar í matvinnsluvél og mennsk fita Marco Evaristti hefur margoft hneykslað fólk með list sinni. Hann vakti gríðarlega reiði í Danmörku árið 2000 þegar hann setti gullfiska ofan í nokkrar matvinnsluvélar fullar af vatni. Gestum og gangandi var svo gefinn kostur á að setja matvinnsluvélarnar í gang. Þá urðu umhverfissinnar í Grænlandi æfir þegar hann málaði ísjaka rauðan árið 2004. Árið 2007 bauð hann svo fólk í „listrænan kvöldverð“ þar sem í boði var pasta og kjötbollur, sem meðal annars voru búnar til úr fitu úr honum sjálfum.Myndskeið af uppátæki hans hér á landi má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Tengdar fréttir Listamaðurinn sektaður um 100 þúsund krónur: „Ætla ekki að greiða sektina“ Síleski listamaðurinn Marco Evaristti, sem í gær hellti rauðu litarefni út í hverinn Strokk á Geysissvæðinu í Haukadal, var í dag sektaður um hundrað þúsund krónur vegna brota á náttúruverndarlögum. 25. apríl 2015 18:47 Íslendingar trompast: „Ég hefði ýtt þér ofan í“ Listamaðurinn hefur fengið að finna fyrir reiði Íslendinga. 26. apríl 2015 21:12 Strokkur gaus rauðu - Myndband Rauðu litarefni var hellt út í Strokk í morgun sem varð til þess að hann gaus rauðu. Talsmaður landeigendafélags Geysis segir að um vanvirðingu við náttúruna sé að ræða og vill að gripið verði til frekari ráðstafana. 24. apríl 2015 11:30 Frjáls ferða sinna hvort sem hann greiðir sektina eða ekki Marco Evaristti, listamaðurinn sem í gær hellti rauðu litarefni út í hverinn Strokk og var í dag sektaður um 100 þúsund krónur, er frjáls ferða sinna og heimil brottför af landinu, hvort sem hann greiðir sektina eður ei. 25. apríl 2015 22:11 Rauða litarefnið í rannsókn hjá lögreglu Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú mál er varðar litarefni sem hellt var ofan í hverinn Strokk á Geysissvæðinu í Haukadal í morgun. 24. apríl 2015 15:43 Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira
Listamaðurinn sektaður um 100 þúsund krónur: „Ætla ekki að greiða sektina“ Síleski listamaðurinn Marco Evaristti, sem í gær hellti rauðu litarefni út í hverinn Strokk á Geysissvæðinu í Haukadal, var í dag sektaður um hundrað þúsund krónur vegna brota á náttúruverndarlögum. 25. apríl 2015 18:47
Íslendingar trompast: „Ég hefði ýtt þér ofan í“ Listamaðurinn hefur fengið að finna fyrir reiði Íslendinga. 26. apríl 2015 21:12
Strokkur gaus rauðu - Myndband Rauðu litarefni var hellt út í Strokk í morgun sem varð til þess að hann gaus rauðu. Talsmaður landeigendafélags Geysis segir að um vanvirðingu við náttúruna sé að ræða og vill að gripið verði til frekari ráðstafana. 24. apríl 2015 11:30
Frjáls ferða sinna hvort sem hann greiðir sektina eða ekki Marco Evaristti, listamaðurinn sem í gær hellti rauðu litarefni út í hverinn Strokk og var í dag sektaður um 100 þúsund krónur, er frjáls ferða sinna og heimil brottför af landinu, hvort sem hann greiðir sektina eður ei. 25. apríl 2015 22:11
Rauða litarefnið í rannsókn hjá lögreglu Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú mál er varðar litarefni sem hellt var ofan í hverinn Strokk á Geysissvæðinu í Haukadal í morgun. 24. apríl 2015 15:43