Tveggja og hálfs árs stelpu rænt og nauðgað í Delí Jóhann Óli Eiðsson skrifar 17. október 2015 20:20 Fólk hefur látið reiði sína í ljós á götum úti. vísir/epa
Mikillar reiði gætir á Indlandi eftir að tveimur börnum var nauðgað í höfuðborginni Nýju-Delí fyrr í dag. Borgarstjórinn Arvind Kejriwal var ómyrkur í máli er hann ræddi við Indian Express um málið.Arvind Kejriwalvísir/getty„Lögreglunni í borginni hefur algjörlega mistekist að tryggja öryggi barna í borginni og það er ólíðandi að nauðganir sem þessar haldi áfram,“ segir Kejriwal. Lögreglan heyrir undir innanríkisráðuneytið. „Hvað eru forsætisráðherrann og ríkisstjórnin að gera? Ef þau ráða ekki við verkefnið eiga þau að færa það til borgarinnar til að tryggja öryggi borgaranna.“ Annarri stelpunni var rænt af heimili sínu í gærkvöldi af tveimur mönnum á mótorhjólum. Stúlkunni, sem er aðeins tveggja og hálfs árs, var skilað aftur í dag og fór þá ekki milli mála hvað hafði gerst sökum áverka og blæðandi sára á líkama hennar. Nýja-Delí hefur verið uppnefnd „nauðganahöfuðborg Indlands“ en þetta eru ekki fyrstu fregnirnar af hrottafengnum nauðgunum sem berast þaðan. Árið 2012 var konu hópnauðgað í strætisvagni í borginni með þeim afleiðingum að hún lést af sárum sínum. Gerendurnir voru hengdir fyrir verknaðinn. Þá var sjö ára stúlku rænt og nauðgað í mars 2013. Mikil mótmæli hafa iðulega sprottið upp í kjölfar frétta af nauðgununum en íbúar, líkt og borgarstjórinn, vilja meina að ekki sé nóg gert til að tryggja öryggi þeirra.
Tengdar fréttir Indversku hrottarnir mættu í dómsal í morgun Mennirnir fimm, sem grunaðir eru um að hafa nauðgað og misþyrmt tuttugu og þriggja ára konu um borð í strætisvagni í Nýju-Delí á Indlandi um miðjan síðasta mánuð, mættu nú á ellefta tímanum fyrir dómara í höfuðborginni. 7. janúar 2013 10:57 Sex ára stúlku nauðgað á almenningssalerni Tuttugu og tveir í haldi lögreglu í Delí á Indlandi. 28. apríl 2013 17:39 Enn ein hópnauðgunin á Indlandi Fimm menn hafa verið handteknir á Indlandi vegna gruns um að hafa rænt og ítrekað nauðgað japönskum námsmanni í borginni Kalkútta yfir rúmlega mánaðarlangt tímabil 3. janúar 2015 14:13 Verða hengdir fyrir nauðgun og morð í strætisvagni Hæstiréttur á Indlandi hefur staðfest dauðadóm yfir fjórum karlmönnum sem sakfelldir voru fyrir nauðgun og morð á ungri konu í Nýju-Delí í desember 2012. 13. mars 2014 15:06 Fimm ára stelpu nauðgað á Indlandi Fimm ára gamalli telpu var rænt, hún svelt og henni nauðgað í Nýju Delí á Indlandi í vikunni. Málið hefur valdið mikilli reiði á Índlandi og hafa mótmæli sprottið þar upp núna um helgina. 20. apríl 2013 15:47 Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Sjá meira
Indversku hrottarnir mættu í dómsal í morgun Mennirnir fimm, sem grunaðir eru um að hafa nauðgað og misþyrmt tuttugu og þriggja ára konu um borð í strætisvagni í Nýju-Delí á Indlandi um miðjan síðasta mánuð, mættu nú á ellefta tímanum fyrir dómara í höfuðborginni. 7. janúar 2013 10:57
Sex ára stúlku nauðgað á almenningssalerni Tuttugu og tveir í haldi lögreglu í Delí á Indlandi. 28. apríl 2013 17:39
Enn ein hópnauðgunin á Indlandi Fimm menn hafa verið handteknir á Indlandi vegna gruns um að hafa rænt og ítrekað nauðgað japönskum námsmanni í borginni Kalkútta yfir rúmlega mánaðarlangt tímabil 3. janúar 2015 14:13
Verða hengdir fyrir nauðgun og morð í strætisvagni Hæstiréttur á Indlandi hefur staðfest dauðadóm yfir fjórum karlmönnum sem sakfelldir voru fyrir nauðgun og morð á ungri konu í Nýju-Delí í desember 2012. 13. mars 2014 15:06
Fimm ára stelpu nauðgað á Indlandi Fimm ára gamalli telpu var rænt, hún svelt og henni nauðgað í Nýju Delí á Indlandi í vikunni. Málið hefur valdið mikilli reiði á Índlandi og hafa mótmæli sprottið þar upp núna um helgina. 20. apríl 2013 15:47
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent