Erlent

Sex ára stúlku nauðgað á almenningssalerni

Það var hópnauðgun í strætisvagni í Delí fyrir áramót sem var orsök þeirrar hrinu mótmæla sem enn stendur yfir.
Það var hópnauðgun í strætisvagni í Delí fyrir áramót sem var orsök þeirrar hrinu mótmæla sem enn stendur yfir.
Tuttugu og tveir eru í haldi lögreglu í Delí á Indlandi eftir að sex ára stúlku var nauðgað á almenningssalerni og hún skorin á háls.

Árásin átti sér stað á laugardag í útjaðri borgarinnar og var farið með stúlkuna á spítala þar sem hún gekkst undir aðgerð á hálsi og kynfærum.

Yfirheyrslur standa yfir mönnunum og segir lögreglustjórinn Ajay Chaudhary að lögreglan sé staðráðin í að finna hinn seka.

Kynferðisofbeldi á Indlandi hefur verið mikið í umræðunni undanfarið, en það var hrottaleg hópnauðgun í strætisvagni í Delí fyrir áramót sem var orsök þeirrar hrinu mótmæla sem enn stendur yfir.

Þá eru aðeins örfáir dagar eru síðan fimm ára stúlku var nauðgað í borginni, en henni var haldið fanginni í þrjá daga og misþyrmt ítrekað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×