Öflug framtíðardeild, ungbarnaleikhús og Góði dátinn Svejk 11. september 2015 22:00 Björk Jakobsdóttir leikkona ?er í forsvari fyrir framtíðardeild Gaflaraleikhússins. Fréttablaðið/stefan
Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði hefur óneitanlega nokkra sérstöðu á meðal íslenskra atvinnuleikhúsa. Það er í miklu samstarfi við nærsamfélag sitt og hefur öðrum leikhúsum á höfuðborgarsvæðinu fremur sinnt börnum og unglingum eins og þekkt er orðið. Björk Jakobsdóttir er í forsvari fyrir Framtíðardeild Gaflaraleikhússins og því vel við hæfi að inna hana eftir því hvað verður efst á baugi í leiklistinni í Hafnarfirði í vetur. „Það hefur verið mikið að gerast í framtíðardeildinni hjá okkur að undanförnu. Leiksýningin Unglingurinn fór til Wroclaw í júní síðastliðnum og sýndi fyrir fullu húsi pólskra ungmenna við mikinn fögnuð. Hluti áhorfenda var blindur og því var sýningunni lýst fyrir þeim. Sýningin fór sömuleiðis til Tianjin í Kína á alþjóðlega listahátíð ungmenna og sló vægast sagt í gegn. Nú er ég að vinna spunasýningu með íslenskum unglingum sem er partur af samstarfi við pólskt leikhús. sýningin verður tekin upp á vídeó og sýnd í Póllandi. Þannig að það er mikill gangur í þessum hluta starfseminnar. En leikárið hjá okkur hefst með því að við erum að setja fjölskyldufarsann Bakaraofninn aftur á svið en sú sýning gekk ákaflega vel hjá okkur á síðasta leikári við mikil hlátrasköll og almenna kátínu. Það er búið að vera alveg frábært að vinna með dúói Gunna og Felix og maður skilur af hverju þeir eru alltaf jafn vinsælir á fjölskylduskemmtunum. Þeir ná einhvern veginn alltaf að skemmta öllum aldri. Þeir hafa leikið saman í tugi ára og hafa þróað með sér yndislegan samleik sem gerir það að verkum að ég gat varla leikstýrt fyrir hlátri. Og það sem þeir leggja á sig grey kallarnir að verða fimmtugir. Felix er kominn með heiftarlegt hveitiofnæmi af því að duglegi leikarinn Gunni getur aldrei hellt því öðruvísi en beint ofan í kokið. Gunni er verulega tognaður í nára af því að hann rennur alltaf í splitt þegar veggurinn dettur á hann. Þannig að það er kannski eins gott fyrir fólk að drífa sig í leikhúsið áður en þeir ganga endanlega frá hvor öðrum. Í október er svo aftur komið að framtíðardeildinni en þá fara Konubörn aftur á fjalirnar. Þessi sýning er skrifuð af sex framúrskarandi skapandi og skemmtilegum stelpum sem eru allar í kringum tvítugsaldurinn. Þær eru nú allar komnar í skapandi og skemmtilegt framhaldsnám í þessum fræðum en ætla að finna tíma til að sýna í október og nóvember. Eftir áramót frumsýnum við tvær nýjar sýningar. Í lok janúar frumsýnum við verk sem heitir White og er heimsfræg verðlaunasýning fyrir yngstu börnin eins til þriggja ára. Frumsýning er í lok janúar. Í mars ætlar svo Ágústa Skúladóttir að vera hjá okkur og leikstýra glænýrri leikgerð eftir Karl Ágúst Úlfsson á Góða dátanum Svejk. Þannig að það er mikið um að vera hjá okkur í allan vetur og það þarf enginn að láta sér leiðast í Hafnarfirði.“ Gaflaraleikhúsið er í talsverðu samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og Björk segir að þetta samstarf skipti þau miklu máli. „Við höfum alltaf lagt áherslu á að sinna ungu fólki vel og leggjum gríðarlega áherslu á þann þátt. Við erum til að mynda með námskeið í skapandi hugsun og spuna fyrir 8. og 9. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og 10. bekkur setur svo upp leikrit. Það er sérstaklega gaman að koma að þessu starfi og finna hvað þessir krakkar eru áhugasamir og öflugir. Það er líka bæði ljúft og skylt að taka fram að þetta væri ekki hægt nema af því að Hafnarfjarðarbær veðjaði á okkur og við erum þakklát fyrir það.“ magnus@frettabladid.is
Menning Mest lesið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Fleiri fréttir Þjóðin virðist tengja við streituna Birta Sólveig fer með hlutverk Línu Langsokks Emilíana og Víkingur Heiðar meðal tólf tilnefndu Listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins til margra áratuga látinn Ungfrú Ísland með flestar tilnefningar Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Eliza Reid efst á bóksölulistanum Opnaði sumarið með sólríkum stæl Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Blautir búkar og pylsupartí Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Sjá meira