Það er bakaríslaust á Heimaey Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. ágúst 2015 15:47 Starfsmenn NOVA að gera allt klárt í morgun. Vísir/KTD
Þeir Þjóðhátíðargestir sem reiknuðu með að geta skellt sér í bakarí í Vestmannaeyjum hafa orðið fyrir vonbrigðum. Ekkert bakarí er opið þessa annasömustu ferðahelgi ársins þegar fjöldi fólks á Heimaey fjórfaldast. Eitt bakarí varð gjaldþrota í vetur og hitt kýs að hafa ekki opið. Í húsnæði Arnórs bakara á Vesturvegi er reyndar múgur og margmenni en ekkert bakkelsi er bakað. Starfsmenn NOVA hafa þar aðstöðu fyrir ýmsa lagervöru en í næsta húsi er kaffihúsið Vinaminni. Fyrir utan er spiluð tónlist yfir daginn og eldhressir starfsmenn taka vel á móti gestum. Þeir geta þó ekki boðið upp á ostaslaufu, snúð eða kókómjólk. „Við höfum aldrei haft opið yfir Verslunarmannahelgina,“ segir Helga Jónsdóttir, einn eigenda bakarísins. Hún minnir á að starfsmenn bakarísins séu verslunarmenn og eigendurnir kjósi að hafa lokað yfir helgina, frá hádegi á föstudegi og fram á mánudagsmorgun, frídag verslunarmanna. Aðspurð segir Helga að starfsmenn bakarísins ráði sig margir hverjir í aðra vinnu yfir helgina. Annað bakarí hefur verið starfrækt við Vesturveg undanfarin ár en rekstur þess var hætt í vetur. Þjóðhátíðargestir verða því að bíða fram yfir Þjóðhátíð þegar þeir snúa aftur á fast land til að geta gætt sér á bakarísvörum. Margir undrast þá ákvörðun bakarans að hafa ekki opið stærstu ferðahelgi ársins. „Við reyndum einu sinni að hafa opið yfir helgina en það var ekkert að gera,“ segir Helga. Hún segir NOVA ekki leigja húsnæði Arnórs bakara. Bakaríið hafi ekki leigutekjur um helgina. NOVA fái þó að geyma varning þar inni.
Tengdar fréttir Gæslumaður skallaður og spellvirki á harðahlaupum í Eyjum Á sjötta tug fíkniefnamála hefur komið upp á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum það sem af er hátíðinni. Lang mest er um hvít efni að ræða. 2. ágúst 2015 09:47 67 ára gömul og aðeins einu sinni misst úr Þjóðhátíð "Ég ætla að vera á þjóðhátíð það sem eftir er nema að það verði einhver heilsubrestur,“ segir Ásta María Jónasdóttir sem hefur einungis einu sinni misst úr þjóðhátíð. 1. ágúst 2015 20:57 Laugardagur í Eyjum: Fjallið, Ásdís María og allir hinir í bongóblíðu Þau eru ófá brosin sem hafa leikið um varir Vestmannaeyinga og gesti þeirra á þjóðhátíð í dag 1. ágúst 2015 18:01 Ungur maður fluttur með sjúkraflugi af þjóðhátíð vegna heilablæðingar Að sögn lögreglunnar eru tildrög áverkanna "mjög óljós" en talið er að manninum hafi verið veitt höfuðhögg sem olli blæðingu inn á heila hans. 2. ágúst 2015 12:35 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Kourani farinn úr landi Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira
Gæslumaður skallaður og spellvirki á harðahlaupum í Eyjum Á sjötta tug fíkniefnamála hefur komið upp á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum það sem af er hátíðinni. Lang mest er um hvít efni að ræða. 2. ágúst 2015 09:47
67 ára gömul og aðeins einu sinni misst úr Þjóðhátíð "Ég ætla að vera á þjóðhátíð það sem eftir er nema að það verði einhver heilsubrestur,“ segir Ásta María Jónasdóttir sem hefur einungis einu sinni misst úr þjóðhátíð. 1. ágúst 2015 20:57
Laugardagur í Eyjum: Fjallið, Ásdís María og allir hinir í bongóblíðu Þau eru ófá brosin sem hafa leikið um varir Vestmannaeyinga og gesti þeirra á þjóðhátíð í dag 1. ágúst 2015 18:01
Ungur maður fluttur með sjúkraflugi af þjóðhátíð vegna heilablæðingar Að sögn lögreglunnar eru tildrög áverkanna "mjög óljós" en talið er að manninum hafi verið veitt höfuðhögg sem olli blæðingu inn á heila hans. 2. ágúst 2015 12:35