Suárez: Enska deildin er sú besta í heimi en Barcelona er besta liðið Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. júlí 2015 08:30 Luis Suárez var frábær með Barcelona á síðustu leiktíð. vísir/getty
Luis Suárez, framherji Spánarmeistara Barcelona, segir ensku úrvalsdeildina þá bestu í heimi en Barcelona er besta liðið. Erfitt að mótmæla því enda vann liðið þrennuna á síðasta ímabili. Úrúgvæinn dvaldi í þrjú og hálft ár á Englandi með Liverpool þar sem hann var kjörinn leikmaður ársins áður en hann gekk í raðir Börsunga síðasta sumar. Hann segist elska lífið í Katalóníu en vonast til að enda ferilinn heima í Úrúgvæ hjá liðinu sem stendur næst hjarta hans. „Ég myndi vilja leggja skóna á hilluna sem leikmaður Nacional, liðsins sem ég elska,“ segir Suárez í viðtali við ESPN Deportes Radio. „En ég myndi líka vilja spila fyrir Ajax aftur,“ bætir Suárez við. Hann reis til frægðar í Evrópu hjá Ajax þar sem hann varð Hollandsmeistari fyrir fjórum árum. Framherjinn öflugi sér líka fram á að spila í Bandaríkjunum einn daginn þar sem fótboltinn er alltaf að vaxa og dafna þar. „Það væri ekki slæmur kostur að spila í MLS-deildinni. Bandaríkin elska fótbolta og þar er spilað núna fyrir fullum völlum,“ segir hann. „Enska úrvalsdeildin er samt sú besta í heimi, en Barcelona er besta liðið. Við höfum okkar markmið fyrir tímabilið. Við viljum vera fyrsta liðið sem ver Meistaradeildartitilinn,“ segir Luis Suárez.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Fleiri fréttir Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Sjá meira