Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Leiknir 1-0 | KR kreisti út sigur gegn nýliðunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2015 00:01
Eyjólfur Tómasson vill eflaust gleyma leik KR og Leiknis í Frostaskjólinu í kvöld sem fyrst. Eyjólfur er, eins og flestir í Leiknisliðinu á sínu fyrsta tímabili í efstu deild, og hefur staðið sig vel í sumar en honum urðu á tvenn alvarleg mistök í kvöld. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum sem var afar tíðindalítill. Það gerði Þorsteinn Már Ragnarsson með skoti úr teignum eftir aukaspyrnu Jacobs Schoop. Skotið var vel viðráðanlegt fyrir Eyjólf en honum tókst ekki að verja. Á lokamínútunni fékk hann svo að líta rauða spjaldið fyrir að taka boltann með höndum fyrir utan vítateig. Hann verður því í banni í botnslagnum mikilvæga gegn Keflavík í næstu umferð sem er mikið áfall fyrir Leikni sem þarf á stigum að halda. Leiknismenn hafa ekki unnið í síðustu fimm deildarleikjum sínum og eru nú aðeins einu stigi frá fallsæti. Þeir geta hins vegar tekið margt jákvætt úr leik kvöldsins sem þeir verðskulduðu að fá eitthvað út úr. Fyrri hálfleikur var afar tíðindalítill en hann var spilaður á forsendum Leiknis sem lék sterkan varnarleik og gaf engin færi á sér. Leiknismenn spiluðu eins og alltaf fast, ekki gróft, sem virtist fara í taugarnar á KR-ingum sem voru hálf hugmyndasnauðir í sínum sóknarleik í kvöld og sköpuðu sér fá færi. Schoop var í strangri gæslu Leiknismanna, þannig að það kom í hlut Jónasar Guðna Sævarssonar og Pálma Rafns Pálmasonar að stjórna spilinu sem gekk heldur erfiðlega. Pálmi átti nokkrar fínar sendingar í fyrri hálfleik en heilt yfir vantaði meiri gæði í spil heimamanna. Leiknismenn sköpuðu sér ekki mikið sjálfir. Sindri Björnsson, sem fór í markið eftir brottrekstur Eyjólfs, fékk reyndar gott færi strax á 2. mínútu sem ekki nýttist og þá náði Kristján Páll Jónsson ekki að stýra boltanum í markið mínútu fyrir hálfleik eftir lipur tilþrif Hilmars Árna Halldórssonar á vinstri kantinum. Hilmar var hættulegur í fyrri hálfleik en datt niður í seinni hálfleik. Leiknismenn söknuðu fyrirliðans Ólafs Hrannars Kristjánssonar, sem var í banni, og það vantaði bit í sóknarleik liðsins. Kolbeinn Kárason sýndi lítið, fyrir utan venjubundna baráttu, og Elvar Páll Sigurðsson ekki neitt eftir að hann kom inn á sem varamaður. Leiknismenn verða að fá meira frá þessum tveimur framherjum sem hafa aðeins skorað samtals eitt mark í sumar. Leiknismenn byrjuðu seinni hálfleikinn betur en það vantaði að reka endahnútinn á sóknirnar. Þeir fengu talsvert pláss á hægri kantinum í seinni hálfleik en náðu ekki að nýta það sem skyldi. Leikurinn datt talsvert niður eftir þessa ágætu byrjun gestanna og allt virtist stefna í markalaust jafntefli - þangað til Þorsteinn skoraði markið dýrmæta á 75. mínútu, 15 mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Leiknismenn ógnuðu lítið eftir mark Þorsteins og voru ekki líklegir til að jafna metin. KR-ingar héldu nokkuð þægilega út og fögnuðu mikilvægum sigri sem skilar þeim upp fyrir Breiðablik í 2. sæti deildarinnar.Bjarni: Hef alltaf verið mikill stuðningsmaður Þorsteins Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, var ánægður með stigin þrjú sem KR-ingar fengu í kvöld. "Við tökum ekkert mikið annað en stigin þrjú út úr þessum leik," sagði Bjarni og bætti því við að Leiknismenn væru erfiðir viðureignar. "Við komust á endanum í gegnum þennan varnarmúr sem Leiknir stillti upp á móti okkur í kvöld. Það er mjög erfitt að spila á móti þeim og þeir vinna mikið í því að koma í veg fyrir það sem andstæðingarnir eru góðir í. Við höfum séð það í nánast öllum leikjum þeirra í sumar. "Það leit út fyrir að þetta væri sigla í jafntefli en við náðum að klára þetta." KR hélt hreinu annan leikinn í röð og Bjarni var að vonum ánægður með varnarleik sinna manna. "Mér fannst þeir ekki ógna markinu okkar neitt sérstaklega mikið. Þeir voru sprækir og kraftmiklir fram á við en fóru ekki með sérlega marga menn fram," sagði Bjarni en hvað vantaði til að brjóta Leiknisvörnina á bak aftur fyrstu 75 mínútur leiksins, eða fram að sigurmarki Þorsteins Más Ragnarssonar? "Það var eins og boltinn væri svolítið heitur. Við héldum honum ekki nógu vel og það var í raun ekki fyrr en í kringum það leyti sem við skoruðum markið sem við fórum að spila boltanum betur. "En andstæðingurinn var líka feykilega öflugur í að stoppa okkar leik og það er ekki bara við okkur að sakast í því," sagði Bjarni sem hrósaði Þorsteini Má fyrir hans framlag. "Ég hef alltaf, öll þau ár sem Þorsteinn hefur verið í KR, verið mikill stuðningsmaður hans. Steini er topp eintak og kom inn af bekknum og gerði vel, ekki bara í markinu heldur var hann líka duglegur. Það er gott að hafa mann eins og Steina í hópnum hjá sér."Freyr: Eyjólfur gerði mistök í markinu Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis, var ósáttur að fá ekki neitt úr leiknum gegn KR í kvöld. "Þetta er mjög blóðugt og svekkjandi. Það er mín upplifun að við hefðum átt að fá meira út úr þessum leik," sagði Freyr. "Við vorum með þá á löngum köflum og fáum svo á okkur mark eftir fast leikatriði sem er mjög ólíkt okkur." Eyjólfur Tómasson, markvörður Leiknis, leit ekki vel út í marki KR og svo lét hann reka sig út af á lokamínútunni fyrir að handleika boltann utan vítateigs. Freyr var að vonum óánægður með Eyjólf í þessum atvikum. "Eyjólfur var frábær fram að markinu og var búinn að grípa vel inn í. Þeir réðust á hann í hornum en hann vælir ekkert, heldur réðist á boltann. "En svo gerir hann mistök í markinu og hann veit það manna best. Og í kjölfarið fékk hann þetta rauða spjald." Leiknismenn sköpuðu sér ekki mikið í leiknum í kvöld en þó nógu mikið að mati Freys til að skora. "Við fáum nægilega mörg færi og opnanir til að skora á þá. Þeir áttu ekki fleiri færi en við. Munurinn er að þeir skoruðu úr föstu leikatriði og maður er bara drullusvekktur, þar sem augnablikið var okkar og kvöldið var okkar. "Mér fannst við mjög vel skipulagðir og planið gekk upp hjá okkur," sagði Freyr en Leiknir hefur nú ekki unnið síðustu fimm leiki sína í Pepsi-deildinni og er aðeins einu stigi frá fallsæti. Þjálfarinn hrósaði stuðningsmannasveitinni Leiknisljónunum fyrir þeirra framgöngu í kvöld en þau sungu allan leikinn og sennilega í 10 mínútur eftir að Valdimar Pálsson, dómari leiksins, flautaði til leiksloka. "Við gerðum okkur grein fyrir að þetta yrði erfitt en það sest alltaf á sálina að vinna ekki leiki. Það er óþolandi og það er ennþá meira óþolandi þegar þú átt bestu stuðningsmenn á landinu og getur ekki gefið þeim sigur. "Við setum þá kröfu á okkur sjálfa að ná í þrjú stig gegn Keflavík. Við gerum allt sem við getum til að vinna þann leik," sagði Freyr að lokum en Leiknir og Keflavík mætast á Leiknisvelli eftir tvær vikur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Fleiri fréttir Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Sjá meira