Sjúkdómsgreiningardeildin Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson skrifar 16. mars 2015 16:47 Í ljósi ítrekaðra endurskilgreininga á valdsviðum einstaka ráðuneyta er ekki úr vegi að velta því upp hvort sérmerktur rúllustóll Haraldar Johannessen — nefndur Ríkislögreglustjóri, skammstafaður RLS — eigi frekar heima undir hatti heilbrigðisráðherra en þess sem fer með gangagerð og gagnaleka. Helsta kappsmál RLS, krafan um forvirkar rannsóknarheimildir, varðar jú umfram allt lýðheilsu. Og um farsóttamundir sem þessar er það skylda hygginna yfirvalda að efla bæði heilsu og hreinlæti þjóðarkroppsins — halda hinu andlega jafnt sem efnislega lífsrými plágufrjálsu og vírusafríu. Nýverið kunngjörði greiningardeild RLS mat sitt á líkunum á ekki svo útilokuðum hryðjuverkum. Mestu púðri er varið í Íslamska ríkið og óttann við mögulega innreið útrásarvíkinga hins nýstofnaða kalífadæmis á óspilltar eyjunnar lendur. Raunar eru íslamistarnir svo frekir um blek að aðrir sannir og vel meinandi „hatursmenn vestrænnar menningar“ hljóta að sameinast í hræðslu um að hellast að óbreyttu alveg úr lestinni. Öfgamenn af öðrum sauðahúsum fá þó smáklausur í skaðabætur, einna helst þeir sem staðsettir eru ýmist hægra- eða vinstramegin utan við þynningarsvæði borgaralegra stjórnmála — og loks þeir sem „telja sig stjórnleysingja,“ eins og skýrsluhöfundar komast að orði. Þetta er ekki fyrsta táknið um efasemdir hinnar allajafna sannfærðu valdstjórnar. Í frægu nafnakalli Geirs Jóns Þórissonar — svartbók sem rituð var undir áhrifum gagnsæisstefnunnar — er anarkistum ósjaldan troðið í gæsalappir. Má það vera, hugsar sérann, að skríllinn hneigist í raun til stjórnleysis? Þannig heggur löggan í keimlíkan knérunn og lærður maður, Eiríkur Bergmann að nafni, sem kveðst viss um að margur stjórnleysinginn hafi aldrei bragðað vatn úr þeim brunni sem hann kennir sig við. Líkt og ef meðlimir barnatrúarkirkjunnar læsu aldrei bók bókanna er útkoma slíks vitaskuld firrt — eða öllu heldur sjúk. Sjálfsblekking er illur sálrænn kvilli. Áratugum saman, jafnvel heila lífstíð, veltast fórnarlömb hans um í óbærilegum kvölum — eingöngu vegna þeirra heilsuskaðandi óra að þau séu önnur en þau eru. Sjálfsmyndin skekkist, sjálfstraustið sekkur, skaðinn sest sem brunasár á vöðvabólginn skrokkinn. Sökum alræmdrar sjónskekkju koma aðstandendur ósjaldan ekki auga á einkennin og sjá því engan sense í að leita viðeigandi meðferðar, eða — þegar tímasprengjan tifar — gera yfirvöldum viðvart. Þögnin vökvar illgresið, afskiptaleysið nærir, slefberar dreifa fræjum og vítahringurinn víkkar. Hér passa tillögur RLS eins og flís við vænsta afturenda. Því rétt eins og forsoðnar kartöflur stytta suðutímann þá stytta forvirkar rannsóknir bilið milli vandamáls og lausnar — skapa aðstæður fyrir vökul augu, eyru og nasir valdstjórnarinnar til að nema rót vandans frekar en torstöðvaðan vöxtinn. Einhverjir gjalda eflaust varhug við þeirri útskúfunarstefnu sem glitti í árið 2009 þegar forvarnalöggur fóru um félagsmiðstöðvar Kópavogs og vöruðu varnarlausa unglinga við því að sælda nokkuð við stjórnlausar svartullar ókindur. En það er óþarfi: nú sækir nálgunin í fjallræðukristni og vill RLS að komið verði á þverfaglegum samráðsvettvangi lögreglu, félagsþjónustu og heilbrigðisyfirvalda svo stuðla megi að heilsubótum þeirra sem verða fyrir áhrifum róttækni — en það er pestin kölluð. Auðvitað eru úrbótatillögur sjúkdómsgreiningardeildarinnar ekki þess megnugar að lækna meinið að fullu, enda hafa farsóttir alla tíð herjað á samfélög iðkenda siðaðrar vitundar. Og jafnvel þótt skilningur á orsökum þeirra og afleiðingum kunni að aukast — til að mynda benda splunkunýjar uppgötvanir til þess að dúllumýs, en ekki rottur, skuli undir fallöxina fyrir útbreiðslu svartadauða — er jafn líklegt að þeim verði með öllu útrýmt og að rottan slíti samvistum við sinn mennska betri helming. En orð eru til alls fyrst, eins og hughreystandi fréttaþulan minnti hlustendur á undir lok umfjöllunar RÚV um ógnarmat RLS. Skili mjúka nálgunin ekki tilætluðum árangri má svo alltaf snúa til herkænsku Mary Poppins sem Þórir Ingvarsson, margverðlaunuð samfélagsmiðlalögga, lýsti nýlega í TEDx fyrirlestri sem einskonar einkunnarorðum starfsvettvangs síns: skeið af sykri kemur lyfinu niður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir skrifar Skoðun Klárum verkin fyrir börnin og íþróttafólkið okkar Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Enn eitt neyðarkall Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar Skoðun Jarðgangnaáætlun - staðfesta eða stefnuleysi Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun „Þetta reddast“ og strategísk sýn á alþjóðamál Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hafnarfjörður er að verða fullbyggður – hvað gerum við nú? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Áminningarskyldan og þjónusta hins opinbera Kristján Páll Kolka Leifsson skrifar Skoðun 36 stunda vinnuvika, leikskólar og komandi kjarasamningar Guðmundur D. Haraldsson skrifar Skoðun Fyrir fólkið Jónas Þór Birgisson skrifar Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar Skoðun X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði og borgaraleg óhlýðni Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson skrifar Skoðun Tækifæri og áskoranir í samningaviðræðum við ESB Vilborg Ása Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun 100 ára uppbygging á næstu 15 árum Halla Thoroddsen skrifar Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Fleiri vilja standa á hálum ís Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar
Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar
Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar
Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar
Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar
Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun