Sport

Magnus Carlsen gestur á Reykjavíkurskákmótinu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Magnus Carlsen verður ekki meðal keppenda en fylgist með föður sínum.
Magnus Carlsen verður ekki meðal keppenda en fylgist með föður sínum. Vísir/EPA

Magnus Carlsen, heimsmeistari í skák, verður meðal gesta á Reykjavíkurskákmótinu sem fram fer um helgina. Hann er væntanlegur til landsins á föstudag.

Magnus var meðal keppenda á mótinu 2004 og 2006 en hann tekur ekki þátt í ár. Það mun faðir hans hins vegar gera. 

„Ég mun loksins sjá suma af þeim stöðum sem ég missti af árin 2004 og 2006, og að sjá vini mína og í eigin persónu hvernig föður mínum gangi,“ skrifar hann á bloggsíðu sína




Fleiri fréttir

Sjá meira


×