Segir þá deyja sem rjúfi lögmálin við Guð Sveinn Arnarsson skrifar 13. febrúar 2015 13:02 Snorri Óskarsson í Betel ásamt lögmanni sínum, Einari Gauti Steingrímssyni, í dómssal í morgun. Vísir/Auðunn Níelsson
Vitnaleiðslur hófust í morgun í Héraðsdómi Norðurlands eystra í máli Akureyrarkaupstaðar gegn Snorra Óskarssyni, kenndum við Betel. Upphaf málsins er á þá leið að Snorra var vikið úr störfum sem grunnskólakennari við Brekkuskóla árið 2012 vegna ummæla um samkynhneigð í persónulegu bloggi hans. Innanríkisráðuneytið felldi þann úrskurð árið 2014 að uppsögn Snorra hafi brotið í bága við lög og að Akureyrarkaupstaður hafi ekki sagt upp starfsmanni sínum með lögmætum hætti. Akureyrarkaupstaður sætti sig ekki við þá niðurstöðu innanríkisráðuneytisins og skaut úrskurði ráðuneytisins til dómstóla. Upphaf málsins má rekja til skrifa Snorra á bloggsíðu sína frá því í septembermánuði árið 2010. Efni bloggsins var samkynhneigð og hún sögð vera synd og syndina leiða til dauða. Snorri, sem þá var grunnskólakennari og mótunaraðili barna í Brekkuskóla á Akureyri, var þarna talinn brjóta gegn grunnskólalögum, að mati Akureyrarkaupstaðar. Þá fór af stað langt áminningarferli og var Snorra sagt upp nokkrum árum seinna.Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri.Vísir/VilhelmÞóttu skrifin ekki vera innan grunnskólalaga Fyrir hádegi báru þrír einstaklingar vitni fyrir dómnum; Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, Snorri Óskarsson og Gunnar Gíslason, þáverandi fræðslustjóri á Akureyri. Eiríkur Björn Björgvinsson fór yfir það hvers vegna Snorra hafi verið vikið úr starfi sem grunnskólakennari á Akureyri. Ástæður þess voru störf Snorra sem rakin höfðu verið í áminningarferli sem hefði endað með uppsögn, sem og að skrif hans hefðu ekki þótt rúmast innan grunnskólalaga. Eiríkur benti einnig á að kjörnir fulltrúar hefðu ekki komið beint að málinu. Snorri Óskarsson sagði í sínu máli Akureyrarbæ hafa misskilið téða bloggfærslu sína frá því árið 2010 þegar hann sagði samkynhneigð vera synd og laun syndarinnar væru dauði. Þetta væru orð Guðs úr Biblíunni. Þarna væri hann ekki að tala um einstaklinga, heldur efnið sjálft. „Ég er að ræða um samkynhneigð, en ekki samkynhneigða,” sagði Snorri við réttarhöldin. Einnig sagði hann bæjaryfirvöld hafa látið undan þrýstingi foreldra sem höfðu sent harðorða tölvupósta til skólastjórnenda þess efnis að þau vildu ekki að maður með þessar skoðanir kenndi börnum þeirra.„Þetta er ekki hatur” Meginstefið í réttarhöldunum í morgun var að reyna að skilja orð Snorra í bloggfærslum hans og hvernig það tengdist starfi hans í Brekkuskóla á Akureyri. Mikið púður fór í að reyna að greina nákvæmlega hvert mögulegt inntak Snorra var í raun. Snorri benti á að samkynhneigð væri synd og evangelískir prestar hér á landi væru ekki að andmæla samkynhneigðum vegna haturs, heldur trúargilda. „Þegar Adam syndgaði þá kom dauðinn,” sagði Snorri. „Allir hér inni eru syndgarar. Við öll hér inni erum syndgarar og fáum ekki björgun nema í Jesú Kristi.”Úr Brekkuskóla.Mynd/Arkitektar.isHjónabandið aðeins fyrir karl og konu Snorri sagði í vitnaleiðslum víðtæka baráttu eða glímu milli trúar evangelískra og svokallaðra mannréttinda samkynhneigðra. „Hjónaband er samband karls og konu og kemur sterkt fram í Jesú Kristi. Þetta er bæði trúarlegur sem og siðferðislegur skilningur minn. Hans predikun er mín predikun. Við höfum fyrirheit um það að Guð muni blessa samband karls og konu og ef við gerum þetta samkvæmt hans ráði er það okkur til blessunar.” Áfram hélt Snorri að ræða hjónabandið og sagði í raun kynhneigð skipta engu máli. „Hjónabandið er bara fyrir karl og konu, ekki samkynhneigða, ekki tvo karla og tvær konur. Ég var ekkert að ræða um samkynhneigð, heldur hjónabandið. Kynhneigð skiptir engu máli í þeim efnum,” sagði Snorri. Málamyndahjónabönd einnig synd Snorra var tíðrætt um hjónabandið og sagði málamyndahjónabönd til þess að aðilar öðlist landvistarleyfi einnig mjög varhugaverð. „Hjónaband er miklu mikilvægari stofnun en að búa til einhverjar tengingar sem er ekkert að marka. Í bloggi mínu hefði ég alveg eins getað talað um sýndarhjónabönd þar sem fólk giftist til að fá landvistarleyfi. Þetta er of heilög stofnun til að leika með hana og er fólki til glötunar.Þeir deyja sem rjúfa lögmálin við Guð Inga Þöll Þórgnýsdóttir, bæjarlögmaður Akureyrarbæjar, spurði Snorra að því hvort hann sé vel að sér í þroska ungra barna. Snorri játaði því. Sem kennari hafi hann þekkingu á þroska þeirra. Því næst spurði lögmaður hvort hætta væri ekki á því að börn tækju ekki texta á borð við að syndinni fylgi dauði ekki bókstaflega, ef hans skilningur hefði ekki verið bókstaflegur. Snorri játaði því að börn myndu líkleg skilja þetta bókstaflega og misskilja textann líkt og Akureyrarbær hafi gert. „Þetta eru ekki mín orð, heldur Biblíunnar. Laun syndarinnar er dauði og dauðinn kemur inn vegna syndarinnar. Ef við gerum ekki klárt frammi fyrir Guði almáttugum þá deyjum við. En líkamlegur dauði kemur vegna þess að ákveðin lögmál eru rofin við Guð.”Frá Akureyri.Vísir/PjeturSamkynhneigð lærð hegðun Snorri telur áróður mikinn um samkynhneigð og að samkynhneigð sé á einhvern hátt lærð hegðun. „Börnum er kennt og áróður er mikill um samkynhneigð. Menn hafa fengið frjálsan aðgang að börnum þar sem þessi lífsmáti er kynntur sem eðlilegur lífsmáti og það er bara áróður. Ég hef verið á ýmsum námskeiðum og okkur var einu sinni færð bók sem var norsk, þýdd á íslensku og hét Frumþættir siðfræðinnar. Þar kom fram setning sem var mikið rædd á kennaranámskeiðinu sem sagði frá því að það vissi enginn hvaðan samkynhneigð kæmi en víst væri að hún smitaðist eftir umræðuna. Því meiri sem umræðan er, því meiri væri samkynhneigðin. Þetta er smitandi gagnvart umræðunni og er talað inn í börn og unglinga. ”Börnin vildu ræða samkynhneigð í tímum Inga Þöll spurði Snorra út í það hvort hann hafi rætt skoðanir sínar við börn í kennslustofum og hvort samkynhneigð hefði komið upp í umræðunni. Snorri minntist þess ekki en sagði að börnin hefðu viljað ræða samkynhneigð við hann. „Ég gat komið inn í stofu og þá vildu þau spyrja mig út í þessi atriði sem og önnur af því að við ráðum ekki hvaða málefni eru iðandi í það og það skiptið hjá börnum. Ég hins vegar eyddi þessum samtölum og svaraði því til að þetta væri ekki efni kennslunnar og hélt áfram að kenna,” sagði Snorri. Vitnaleiðslum verður fram haldið eftir hádegi í dag. Dómari í málinu er Þorsteinn Davíðsson, héraðsdómari.
Tengdar fréttir Akureyringar vilja mál Snorra í Betel fyrir dómsstóla Bæjarstjórn Akureyrar unir illa úrskurði innanráðuneytisins um að uppsögn Snorra Óskarssonar hafi verið ólögmæt. 8. maí 2014 14:22 "Þetta eru fordómar gegn mínum trúarlegu viðhorfum“ Innanríkisráðuneytið úrskurðaði í dag að uppsögn Snorra í Betel úr Brekkuskóla hefði verið ólögmæt. 9. apríl 2014 16:17 Snorri segist sæta ofsóknum af hálfu Akureyrarbæjar Kennarasambandið er með mál Snorra Óskarssonar á sínu borði. Dómsmál blasir við ef ekki takast samningar. 11. apríl 2014 10:56 Höfundum Biblíunnar láðist að taka tillit til mannauðsstefnu Akureyrar Akureyrarbær hefur stefnt Snorra í Betel og vill ógilda úrskurð innanríkisráðuneytisins. Bæjaryfirvöld telja sig hafa mátt reka Snorra úr starfi sínu sem kennari, vegna skrifa hans á bloggsíðu um kristna trú. 26. nóvember 2014 17:15 Mest lesið Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innlent Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Innlent Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Innlent Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Erlent Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Erlent Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Innlent Raðsundlaugarkúkari gengur laus í Oulu Erlent Með mikla áverka og mjög kaldur þegar hann fannst Innlent Mannskæð skotárás í skóla í Bandaríkjunum Erlent Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Innlent Fleiri fréttir Hraðbankaþjófur játar sök Framlengja gæsluvarðhald yfir leiðbeinandanum um fjórar vikur Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Með mikla áverka og mjög kaldur þegar hann fannst Móðirin áfram í haldi og húsleit á Írlandi Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Losun Íslands jókst á öllum sviðum og langt í land með skuldbindingar Bylting í heilbrigðisþjónustu og áróður Bandaríkjamanna Vilja halda leiðbeinandanum áfram bak við lás og slá Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innbrot og slagsmál í miðborginni Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Hraðbankinn fannst á Hólmsheiði „Starfsemi sem þarf auðvitað bara að stoppa" Ekkjan, fjársvikahrina og ferðamenn sem hunsa lokanir Lenti næstum framan á vörubíl við framúrakstur Nú má heita Snjókaldur en ekki Latína „Það er bara allt á floti hérna alls staðar“ Fjárhús varð öldugangi að bráð Sveinn nýr formaður stjórnar Landspítalans Heimsótti foreldra Matthíasar: Sagðist sjálfur hafa átt hugmynd að lögmannaskiptum Milljónirnar 22 voru enn í hraðbankanum þegar hann fannst Sjá meira
Akureyringar vilja mál Snorra í Betel fyrir dómsstóla Bæjarstjórn Akureyrar unir illa úrskurði innanráðuneytisins um að uppsögn Snorra Óskarssonar hafi verið ólögmæt. 8. maí 2014 14:22
"Þetta eru fordómar gegn mínum trúarlegu viðhorfum“ Innanríkisráðuneytið úrskurðaði í dag að uppsögn Snorra í Betel úr Brekkuskóla hefði verið ólögmæt. 9. apríl 2014 16:17
Snorri segist sæta ofsóknum af hálfu Akureyrarbæjar Kennarasambandið er með mál Snorra Óskarssonar á sínu borði. Dómsmál blasir við ef ekki takast samningar. 11. apríl 2014 10:56
Höfundum Biblíunnar láðist að taka tillit til mannauðsstefnu Akureyrar Akureyrarbær hefur stefnt Snorra í Betel og vill ógilda úrskurð innanríkisráðuneytisins. Bæjaryfirvöld telja sig hafa mátt reka Snorra úr starfi sínu sem kennari, vegna skrifa hans á bloggsíðu um kristna trú. 26. nóvember 2014 17:15