Atli Viðar skoraði þrennu fyrir FH í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2015 20:41 Atli Viðar Björnsson. Vísir/Daníel
FH-ingar fóru illa með Þróttara í kvöld þegar liðin mættust í A-deild Fótbolta.net mótsins en leikurinn fór fram í Egilshöllinni. FH vann leikinn 7-1 eftir að hafa verið 4-0 yfir í hálfleik. Atli Viðar Björnsson fór á kostum í leiknum og skoraði þrennu en hin mörk FH-liðsins skoruðu þeir Jérémy Serwy, Emil Pálsson og Steven Lennon en fyrsta mark leiksins var sjálfsmark Karls Brynjars Björnssonar. Belgíski bakvörðurinn Jonathan Hendrickx lagði upp tvö fyrstu mörk Atla Viðars sem komu á 12. og 33. mínútu leiksins en Atli Viðar innsiglaði síðan þrennuna á 59. mínútu. Jonathan Hendrickx var ekki eini Belginn í liði FH sem var að gera góða hluti því landi hans Jérémy Serwy skoraði beint úr aukaspyrnu í öðrum leiknum í röð. Þetta var annar leikur en fyrstu stigin hjá FH í mótinu en Hafnarfjarðarliðið tapaði 2-1 á móti Breiðabliki í fyrsta leik sínum. Þróttarar hafa aftur á móti tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á móti ÍA (1-3) og svo FH í kvöld. Markatala liðsins er því 2-10 eftir tvo leiki. Allar upplýsingar um markaskorar eru fengnar frá vefsíðunni fótbolti.net en það má finna umfjöllun um þennan leik hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Sjá meira