Gæsluvarðhald staðfest yfir einhverfum manni vegna auðgunarbrota og vörslu á barnaklámi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 15. september 2015 16:57 Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir erlendum karlmanni sem sakaður um að hafa hafa greitt fyrir flugmiða hingað til lands og fjöldann allan af vörum með illa fengnu kreditkortanúmeri, sem og fyrir vörslu og dreifingu á barnaklámi.Vísir fjallaði um úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í upphafi mánaðar þegar maðurinn var dæmdur í einangrun en mál hans er rakið í úrskurðinum. Hann mun sæta gæsluvarðhaldi til fimmtudagsins 8. október. Hann var settur í farbann í sumar eftir að hann losnaði úr gæsluvarðhaldi 27. júlí. Síðan þá hefur lögregla rannsakað um þrjá tugi ætlaðra brota hans. Hæstiréttur taldi það sýnt að maðurinn myndi halda áfram að brjóta af sér á meðan máli hans er ekki lokið.Talið að maðurinn hafi umráð yfir 8000 skrám sem innihalda barnaklám Fyrir dóminum lá skýrsla erlends geðlæknis þar sem fram kemur að maðurinn sé með Asberger-heilkenni, athyglisbrest og ofvirkni. Í úrskurði héraðsdóms segir að skýrslan bendi ekki til ósakhæfis mannsins. Við meðferð málsins hjá lögreglu fór fram rannsókn á þeim tölvubúnaði sem maðurinn hafði meðferðis og fundust þar fjöldi flugbókana á vegum kærða og greiðslukortanúmer sem tilheyrðu öðrum aðilum. Þá fannst einnig umtalsvert magn skráa sem geyma myndir og myndbönd af börnum, mestmegnis ungum drengjum, í kynferðislegum athöfnum. Lögreglan telur manninn því undir „rökstuddum grun” um að hafa haft í vörslum sínum og til dreifingar þúsundir myndbanda og mynda sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt í skrám á hörðum diskum og tölvuskýjum (Dropbox). Lögreglan hefur farið yfir 6 aðganga mannsins af þeim 27 sem talið er að hann hafi umráð yfir og hafa um 8000 skrár sem innihalda barnaklám komið í ljós fram til þessa. Úrskurð Hæstaréttar má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira