Hljóp frá hótelreikningum í Reykjavík með mikið magn barnakláms í fórum sínum Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. september 2015 17:42 vísir/getty
Erlendur ríkisborgari var úrskurðaður í Hæstarétti í dag í einangrun meðan á rannsókn máls hans stendur yfir. Maðurinn er sakaður um að hafa hafa greitt fyrir flugmiða hingað til lands og fjöldan allan af vörum með illa fengnu kreditkortanúmeri, sem og fyrir vörslu og dreifingu á barnaklámi. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur er mál hans rakið. Þar segir að upphaf rannsóknar lögreglu á máli mannsins megi rekja til ábendingar sem lögreglunni barst frá flugfélagi einu um að kærði væri á leið til landsins og að farmiði hans hefði verið greiddur með illa fengnu greiðslukortanúmeri. Farmiðinn hafi verið bókaður í gegnum vef félagsins og nam greiðslan alls 722.178 krónum fyrir flug til Íslands þann 16. júní síðastliðinn og frá landinu aftur daginn eftir. Sá kærði var handtekinn við komuna hingað til lands og úrskurðaður í gæsluvarðhald á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Hann játaði við yfirheyrslur að hafa keypt farmiðann með illa fengnu greiðslukortanúmeri og er rannsókn þess máls lokið.Þúsundir barnaklámsgagna og hlaupið frá reikningumVið meðferð málsins hjá lögreglu fór fram rannsókn á þeim tölvubúnaði sem maðurinn hafði meðferðis og fundust þar fjöldi flugbókana á vegum kærða og greiðslukortanúmer sem tilheyrðu öðrum aðilum. Þá fannst einnig umtalsvert magn skráa sem geyma myndir og myndbönd af börnum, mestmegnis ungum drengjum, í kynferðislegum athöfnum. Lögreglan telur manninn því undir „rökstuddum grun” um að hafa haft í vörslum sínum og til dreifingar þúsundir myndbanda og mynda sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt í skrám á hörðum diskum og tölvuskýjum (Dropbox). Lögreglan hefur farið yfir 6 aðganga mannsins af þeim 27 sem talið er að hann hafi umráð yfir og hafa um 8000 skrár sem innihalda barnaklám komið í ljós fram til þessa. Lögreglan telur að mun meira magn af slíku efni sé að finna á þeim 21 aðgöngum sem eftir standa. Við rannsókn málsins fundust einnig gögn sem bentu til þess að að maðurinn hafi dreift slíku efni til ótilgreindra aðila í spjallhópum á veraldarvefnum sem kynferðislegar kenndir hafa til barna. Þá er lögreglan einnig með til rannsóknar önnur meint fjársvika mál mannsins en honum er gefið að sök að hafa keypt og pantað vörur og þjónustu með stolnum kreditkortaupplýsingum. Um er að ræða fjölda tilvika þar sem pöntun var gerð á veraldarvefnum fyrir vörum, einkum dýrum tölvubúnaði og þjónustu, til að mynda dýrum dagsferðum í ferðaþjónustu. Loks eru til rannsóknar nokkur tilvik þar sem kærði er grunaður um fjársvik, með því að hafa stungið af frá ógreiddum reikningum hjá hótelum í Reykjavík. Við rannsókn málsins lagði lögreglan hald á fartölvu, tvo Iphone farsíma og Ipad spjaldtölvu sem maðurinn var með undir höndum við handtökuna.
Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Hljóp á sig Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Fleiri fréttir Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Sjá meira