Nýja stjórnin stefnir á fullveldi Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. september 2015 07:00 Aksel V. Johannessen er tekinn við af Kaj Leo Johannesen sem lögmaður Færeyja. Nordicphotos/AFP
Aksel V. Johannesen, formaður Jafnaðarflokksins í Færeyjum, kynnti í gær nýja landstjórn sína, sem er samsteypustjórn með Þjóðveldi og Framsókn. Stjórnarflokkarnir þrír hafa allir haft fullveldi Færeyja á stefnuskrá sinni og hyggjast nú gera breytingar á stjórnskipan Færeyja, sem eigi að tryggja Færeyjum fullveldi. Þetta á að bera undir atkvæði í Færeyjum ekki síðar en á árinu 2017. Um fyrirhugaðar breytingar segir í stjórnarsáttmála nýju stjórnarinnar: „Ný stjórnskipan á að staðfesta að Færeyingar fara með völdin í Færeyjum. Lögin eiga að staðfesta og skilgreina sjálfsákvörðunarrétt Færeyinga, þar með að allur réttur til þess að ákvarða þjóðréttarstöðu Færeyja til framtíðar liggur hjá Færeyingum.” Jafnaðarflokkurinn sigraði í kosningum til færeyska lögþingsins, sem haldnar voru 1. september, og hlaut fjórðung atkvæða og 8 þingmenn, en Þjóðveldi hlaut fimmtung atkvæða og 7 þingmenn. Þriðji stjórnarflokkurinn er svo Framsókn, sem hlaut tvo þingmenn í kosningunum. Saman hafa stjórnarflokkarnir þrír því 17 af 33 þingmönnum á færeyska lögþinginu. Aksel V. Johannessen tekur við af hægri manninum Kaj Leo Johannessen, sem hefur verið lögmaður í tvö kjörtímabil samfleytt. Varalögmaður nýju stjórnarinnar er Høgni Hoydal, sem er formaður Þjóðveldisflokksins.
Mest lesið Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Fleiri fréttir Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Sjá meira