Missti fót í bílslysi 2013 en spilaði körfuboltaleik í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. nóvember 2015 15:00 Natasa Kovacevic. Vísir/EPA
Serbneska körfuboltakonan Natasa Kovacevic snéri aftur inn á körfuboltavöllinn í gærkvöldi tveimur árum eftir að hún missti fót í bílslysi. Natasa Kovacevic, þá bara 19 ára gömul, var ein efnilegasta körfuboltakona Serbíu þegar hún lenti í alvarlegu bílslysi árið 2013. Hún var þá á leið í útileik með liðsfélögum sínum í ungverska liðinu UNI Györ. Þjálfari og framkvæmdastjóri liðsins létust í slysinu og það þurfti að taka vinstri fót Kovacevic af fyrir neðan hné. Natasa Kovacevic er 188 sentímetra framherji sem vann brons á EM með serbneska 18 ára landsliðinu árið 2012. Kovacevic var ekki tilbúin að gefa upp vonina um að snúa aftur á körfuboltavöllinn og hefur unnið markvisst að því að upplifa þá stund. Saga hennar hefur fengið mikla athygli í evrópska körfuboltaheiminum og var hún meðal annars valin sérstakur sendiherra FIBA Europe meðal ungs fólks árið 2014. Kovacevic varð síðan í gær fyrsti fatlaðri evrópski körfuboltaleikmaðurinn sem spilar með atvinnumannaliði þegar hún kom inná völlinn með Rauðu Stjörnunni frá Belgrad. Natasa Kovacevic spilaði í 15 mínútur í sínum fyrsta leik sem lið hennar vann 78-47. Kovacevic var með 5 stig, 3 fráköst, 3 stolna bolta og 1 stoðsendingu á þessum fimmtán mínútum.Natasa Kovacevic.Vísir/EPASto bi moja baba rekla Nato pa ti si opet pocela da igras ovaj fudbal...bolje ti je da se udas pic.twitter.com/FQgFxlFc7k— Natasa Kovacevic (@Nacika7) November 11, 2015 Iiidemoooooo @Nacika7 pic.twitter.com/uTXBcC39Uu— Zorana Arunović (@Zorana_Arunovic) November 11, 2015
Körfubolti Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Enski boltinn Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Mótherjarnir afsaka sig fyrir fram: „Hvort sem það er leikrit eða ekki“ Fótbolti Fleiri fréttir Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð Sjá meira