Hreinsanir á Hlíðarenda - samningum þriggja leikmanna sagt upp Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. október 2014 13:06 Bjarni Ólafur Eiríksson. Vísir/Stefán
Valsmenn hafa sagt upp samningum við þrjá leikmenn og þar á meðal er hinn uppaldi Bjarni Ólafur Eiríksson sem hefur aldrei spilað fyrir annað íslenskt lið. Þessar fréttir frá Hlíðarenda berast í sömu viku og bæði aðalþjálfarinn Magnús Gylfason og aðstoðarþjálfarinn Halldór Jón Sigurðsson hættu hjá liðinu. Fótbolti.net segir frá þessu og hefur heimildir fyrir því að Valur hafi nýtt sér uppsagnarákvæði í samningum Bjarna Ólafs Eiríkssonar, Fjalars Þorgeirssonar og Halldórs Hermanns Jónssonar. Bjarni Ólafur Eiríksson er 32 ára gamall vinstri bakvörður en hann var með samning til ársins 2015. Bjarni Ólafur spilaði alla 22 leiki Valsliðsins í Pepsi-deildinni í sumar og var fyrirliði í sjö þeirra. Fjalar Þorgeirsson er 37 ára gamall markvörður sem var með samning til ársins 2015 en hann missti sætið sitt í síðustu sex umferðunum. Miðjumaðurinn Halldór Hermann Jónsson kom til Vals frá Fram fyrir tímabilið og var eins og hinir með samning út næsta tímabil. Halldór Hermann spilaði 17 Pepsi-deildarleiki í sumar en var aðeins átta sinnum í byrjunarliðinu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Enski boltinn Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslenski boltinn Willum snýr aftur í hollenska boltann Fótbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti „Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ Handbolti Fleiri fréttir Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Sjá meira