Notkun rítalíns jókst um rúm 52% milli 2009 og 2013 Óli Kristján Ármannsson skrifar 23. apríl 2014 07:00 Tölur Lyfjastofnunar sýna að síðustu fjögur ár virðist jafnaðaraukning í notkun lyfja við ofvirkni og athyglisbresti vera rúm 11 prósent á ári. Milli 2011 og 2013 jókst notkun rítalín-lyfja um 22,9 prósent. Fréttablaðið/Stefán
Notkun rítalínlyfja, sem notuð eru við ofvirkni og athyglisbresti, tók stökk á síðustu fjórum árum, samkvæmt nýjum tölum Lyfjastofnunar. Milli áranna 2009 og 2013 jókst notkun slíkra lyfja um 52,2 prósent, fór úr 12,84 dagskömmtum á hverja þúsund íbúa í 19,54 dagskammta. Ef horft er til magns lyfjanna nemur aukningin hins vegar 54,4 prósentum, fer úr tæplega 1,5 milljónum dagskammta í rúmlega 2,3 milljónir. Á sama tímabili fór smásöluverð lyfjanna úr 525,2 milljónum króna árið 2009 í 850,4 milljónir á síðasta ári. Ólafur B. Einarsson, verkefnisstjóri lyfjamála hjá Embætti landlæknis, segir mikla vinnu hafa verið í gangi til að átta sig á þróuninni hér og hvernig bregðast eigi við. Meðal annars hafi verið komið upp nýju greiningarteymi á Landspítalanum sem sinnir greiningu fullorðinna. Á meðan notkun þessara lyfja aukist hér á landi dragi heldur úr henni á öðrum Norðurlöndum. Hér hafi notendum þessara lyfja hins vegar fjölgað, bæði fullorðnum og börnum, og notkun verið nær því sem gerist í Bandaríkjunum. RÚV greindi fyrir helgi frá rannsókn sem sýndi að milli 2003 og 2012 hafi notkun fullorðinna á ofvirknilyfjum nær fjórfaldast. Ólafur segir vitað að lyf af þessu tagi séu misnotuð og vísar þar til doktorsverkefnis Guðrúnar Dóru Bjarnadóttur læknis. „Hún hefur kannað ástandið hjá sprautufíklum og þessi metýlfenídatlyf eru hvað vinsælust hjá þeim og virðast tekin fram yfir ólögleg efni,“ segir hann. „Fíknin í þetta virðist vera meiri en í þessi ólöglegu efni.“ Reynt sé að bregðast við aukinni misnotkun með bættri greiningu og með því að setja aukið púður í eftirlit. Sameiginlegur gagnagrunnur um lyfjaávísanir hafi verið til frá 2006, en nú sé stefnt að aðgangi lækna að rauntímagrunni. „Annars virðist vandamálið með þessi lyf ekki vera þetta svokallaða doctor shopping. Vandamálið virðist vera of margar greiningar.“ Ólafur segir að hópur á vegum Landlæknis, Sjúkratrygginga og Lyfjastofnunar hafi gert tillögur til úrbóta til velferðarráðuneytisins. Vandamálið sé hins vegar margþætt. Þótt mikið stökk upp á við í notkun lyfja við ofvirkni og athyglisbresti kunni að benda til þess að pottur sé brotinn, byggi þær á greiningum sem unnar séu af sérfræðingum. „Við stöndum okkur ekkert sérstaklega vel þegar fólk er að misnota þessi lyf.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Skorar á Bjarna Guðjónsson að mæta sér Spenntur fyrir fundi með „góðum vinum Bandaríkjanna“ Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun Sjá meira