Innlent

Meðalkrafan þegar Efling innheimtir er yfir 350 þúsund

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
"Það er mikilvægt að fólk þekki og kynni sér rétt sinn til þess að vita hvort verið sé að brjóta á þeim eða ekki,“ segir Hrannar.
"Það er mikilvægt að fólk þekki og kynni sér rétt sinn til þess að vita hvort verið sé að brjóta á þeim eða ekki,“ segir Hrannar.
Meðalkrafan þegar Efling stéttarfélag innheimtir ógreidd eða vangreidd laun eru rúmar 350 þúsund krónur. Á fyrstu þremur mánuðum ársins fór Efling af stað með launakröfur upp á tæpar 19 milljónir. Þetta kemur fram í nýjasta fréttablaði félagsins.

„Það eru alltaf mál til staðar,“ segir Hrannar Gíslason, þjónustufulltrúi í kjaradeild hjá Eflingu. Eftir fréttaflutning Vísis í mars síðastliðnum af kjaramálum ungs fólks á vinnumarkaðinum hefur fyrirspurnum vegna jafnaðarkaups aukist talsvert að sögn Hrannars.

Vísir fjallaði um það fyrr á árinu að svo virtist vera sem ungt fólk fengi oft greitt jafnaðarkaup fyrri vinnu sína þegar það ætti rétt á yfirvinnukaupi.

Jafnaðarkaup er ráðandi greiðslufyrirkomulag í veitingageiranum,“ sagði Tryggvi Marteinsson, þjónustufulltrúi hjá stéttarfélaginu Eflingu í samtali við Vísi þá. „Þetta er algengasta greiðslufyrirkomulagið og síðan kemur fólk til okkar þegar það lætur af störfum og áttar sig á því að það hefur ekki fengið greitt eins og það átti að fá.“

Undantekningarlaust fái fólk þá greitt undir lágmarkslaunum og Efling innheimtir mismuninn.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins bárust Eflingu 85 formleg innheimtumál eða mál vegna fyrirvaralausra uppsagna. 45 málanna snéru að veitingageiranum. Langflest mál Eflingu snúa að þeim geira þó félagsmenn Eflingar í þeirri atvinnugrein séu aðeins um 20 prósent af heildar félagsmannafjölda félagsins.

„Það er mikilvægt að fólk þekki og kynni sér rétt sinn til þess að vita hvort verið sé að brjóta á þeim eða ekki,“ segir Hrannar. Hann áréttar að félagsmenn geti alltaf haft samband við Eflingu gruni þá að verið sé að brjóta á réttindum þeirra. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×