Lífið

Neighbours-leikari til landsins: „Hápunktur lífs míns að koma til Íslands“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Alan hefur lengi dreymt um að heimsækja Íslands.
Alan hefur lengi dreymt um að heimsækja Íslands. vísir/getty
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem til Íslands en það hefur lengi verið á listanum yfir þá hluti sem ég þarf að gera áður en ég dey. Ég hef heyrt að þetta sé eitt fallegasta land í heimi og ég varð að komast þangað. Tónleikarnir voru gott tækifæri til þess,“ segir leikarinn og tónlistarmaðurinn Alan Fletcher. Hann er hvað þekktastur fyrir að túlka vinalega lækninn Karl Kennedy í áströlsku sápuóperunni Neighbours. Hann heldur tónleika með sveitinni The X-Rays á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi hinn 9. janúar næstkomandi.

Alan er ekki aðeins lunkinn tónlistarmaður og hæfileikaríkur leikari heldur hefur hann einnig unnið fyrir sér sem atvinnuljósmyndari.

„Ég er búinn að vera að kynna mér Ísland því ég er mjög áhugasamur ljósmyndari og ég elska að taka landslagsmyndir. Ég hef eytt fáránlega miklum tíma á internetinu að skoða jökla og aðra áhugaverða staði á Íslandi. Ég á líka vini sem hafa búið á Íslandi þannig að ég er nokkuð vel að mér þegar kemur að landinu. Ég á líka Facebook-vini frá Íslandi sem hafa gefið mér upplýsingar um landið,“ segir Alan. Þá hefur hann smakkað brennivín sem hann segir hafa verið áhugaverða lífsreynslu.

„Þrír aðdáendur Neighbours frá Íslandi heimsóttu tökustað fyrir stuttu og þeir gáfu mér smakk af brennivíni frá Íslandi. Það var áhugaverð lífsreynsla. Ég verð að prófa það aftur en ég held að maður verði að drekka það í hófi. Mér fannst bragðið gott en ég held að ég myndi lenda í tómu tjóni ef ég fengi mér of mikið,“ segir Alan hlæjandi.

Alan tekur sig ekki of alvarlega.
Leikarinn ætlar að dvelja á Íslandi í fimm daga og ferðast um landið. Hann er ekki í vafa um hvað hann vill helst berja augum hér á landi.

„Ég vona að ég fái að sjá norðurljósin. Mest hlakka ég bara til að koma til Íslands. Það verður hápunktur lífs míns að koma til Íslands.“

Alan er spenntur að spila fyrir Íslendinga, sérstaklega þar sem margir þeirra eru aðdáendur Neighbours, sápuóperu sem fagnar þrjátíu ára afmæli sínu á næsta ári.

„Það sem hvatti mig til að koma til Íslands var að ég heyrði að næstum því hálf þjóðin horfi á Neighbours. Á tónleikum spila ég alltaf frumsamið efni en meirihluti laganna er þó eftir aðra. Lög sem hægt er að syngja með og dansa við. Svo syng ég alltaf lag sem ég tileinka Susan Kennedy,“ segir Alan. Vísar hann í eiginkonu sína í Neighbours sem leikin er af Jackie Woodburne en hann syngur ávallt Living Next Door to Alice með Smokie á tónleikum og breytir nafninu Alice í Susan. Neighbours-goðið segist alveg laust við stjörnustæla.

„Ég reyni ekki að vera Mick Jagger. Og ég reyni svo sannarlega ekki að vera Kylie Minogue,“ segir Alan glaður í bragði en Kylie túlkaði Charlene í Neighbours áður en hún sló í gegn á heimsvísu sem söngkona. „Ég tek mig ekki of alvarlega. Ég tengist salnum á persónulegum nótum og ég leik ekki rokkstjörnu. Mér finnst áhorfendur kunna að meta það og tónleikarnir breytast yfirleitt í eitt stórt partí.“

Hér er Karl Kennedy ásamt eiginkonu sinni, Susan.
Fyrirtækið Reykjavík by Night stendur fyrir komu Alans til landsins en leikarinn hafði samband við fyrirtækið að fyrra bragði. Miðasala á tónleikana hefst á föstudag og eru um þúsund miðar í boði. Auk þess eru 150 miðar í boði á tæplega tveggja tíma stund með leikaranum sem hefst á Spot fyrir tónleikana. Þar geta aðdáendur hitt kauða, fengið mynd af sér með honum og spjallað.

„Því miður get ég ekki hitt alla – það myndi taka margar klukkustundir. En ég fæ að hitta ákveðinn fjölda í eigin persónu, þessa eldheitu aðdáendur,“ segir Alan. 

Alan hefur leikið Dr. Karl Kennedy í Neighbours í tuttugu ár. Hann segist aldrei fá leiða á doktornum.

„Þetta hefur liðið hjá á svipstundu í sannleika sagt. Ef maður er í vinnu sem maður elskar þá er erfitt að kalla það vinnu. Þetta eru langir tökudagar og stundum gengur illa. En þetta hefur verið mér ánægja, listrænt séð, og ég get ekki beðið um meira. Þetta er draumastarfið mitt. Og besta við það, það sem mér finnst skemmtilegast að gera, er að hitta fólk sem elskar þáttinn. Ég vinn líka mikið í leikhúsi en í Neighbours eru engir áhorfendur. Þá skynjar maður ekki hve vinsæll þátturinn er fyrr en maður hittir aðdáendur,“ segir Alan. Hann veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér hvað Karl varðar og hugsar ekki nema eitt ár fram í tímann.

„Mér semur vel við alla sem standa að þáttunum og öllum virðist semja vel við mig. Karakterinn er enn vinsæll og því er erfitt að segja hve lengi ég leik hann. Ég fæ eins árs samning í senn og kannski kemur að því að nærveru minnar verði ekki óskað lengur eða ég vil gera aðra hluti. Ég elska vinnuna mína, ég elska þetta hlutverk og ég vil ekki hugsa til þess að þessu ljúki á næstunni.“

Með eiginkonu sinni, Jennifer Hansen.vísir/getty
Alan er kvæntur fréttakonunni Jennifer Hansen og saman eiga þau tvö börn sem komin eru á unglingsaldur. Alan fær tólf vikur í frí frá Neighbours á ári og reynir að nýta þær með fjölskyldunni. Hann segir flesta drauma sína uppfyllta nema einn.

„Minn stærsti draumur sem foreldri er að sjá börnin mín vaxa úr grasi og að þau njóti velgengni í lífinu og verði hamingjusöm. Það er lífstíðardraumur,“ segir Alan. En hefur skemmtanabransinn gert hann ríkan?

„Ég hef það gott. Ef mig langar í dýra vínflösku get ég leyft mér það. Það frábæra við mitt starf er að ég get hjálpað öðrum í gegnum góðgerðarstarfsemi. Ég og eiginkona mín leitum sífellt leiða til að leggja málefnum lið og það veitir okkur mikla ánægju. Það er það sem gerir mig ríkan.“

Alan Fletcher í hnotskurn

* Fæddur 30. mars árið 1957 í Perth í Vestur-Ástralíu

* Fékk fyrsta hlutverkið í sjónvarpi árið 1976 í The Young Doctors

* Lék bróður Jackie Woodburne í sjónvarpsseríunni Cop Shop árið 1977 en hún leikur eiginkonu hans í Neighbours

* Fékk aukahlutverk í Neighbours árið 1987 sem Greg Cooper

* Árið 1994 byrjaði hann að leika Dr. Karl Kennedy

* Alan hefur leikið talsvert á sviði, bæði í Ástralíu og Englandi - þar á meðal í My Fair Lady og Peter Pan

* Er talinn einn af þremur bestu portrett-ljósmyndurunum í Melbourne í Ástralíu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×