Kæra samningsgerð 2,7 milljarða stöðvar Svavar Hávarðsson skrifar 20. október 2014 07:00 Árlega eru 100.000 tonn af úrgangi urðuð í Álfsnesi. Með stöðinni á að breyta stórum hluta þess magns í metangas og jarðvegsbæti. vísir/valli
Íslenska gámafélagið ehf. og dótturfélag þess, Metanorka ehf., hafa kært Sorpu bs. til kærunefndar útboðsmála vegna samningsgerðar vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar fyrir höfuðborgarsvæðið. Samningsgerð Sorpu er kærð þar sem hún er sögð stangast á við lög um opinber innkaup, og bjóða hefði átt verkið út til að gæta að miklum einka- og almannahagsmunum. Sorpa ákvað strax árið 2007 að kaupa tæknilausn danska fyrirtækisins Aikan Solar fyrir stöðina. Rökin eru að hún sé eina lausnin sem uppfylli markmið byggðasamlagsins um meðhöndlun lífræns heimilissorps, en tæknin gerir sorpflokkun óþarfa. Áætlað er að stöðin muni kosta 2,7 milljarða króna fulluppsett. Metanorka hafnar því með öllu að tæknilausnin sé einstök og útiloki aðrar. Þvert á móti séu ýmsir aðrir möguleikar í boði þar sem hægt er að ná sömu markmiðum. Þess utan hefur Metanorka, ásamt dönskum samstarfsaðilum, lausn sem kostar helmingi minna en sú sem Sorpa ætlar sér að kaupa. Sú lausn gerir ráð fyrir að heimilissorp sé flokkað, eins og gert er ráð fyrir í stefnu sveitarfélaganna. Þessa lausn hafa forsvarsmenn Metanorku kynnt stjórn Sorpu, án sérstakra undirtekta. Sorpa telur sig í fullum rétti og leitaði til innkaupadeildar Reykjavíkurborgar um ráðgjöf varðandi útboðsmál stöðvarinnar í maí síðastliðnum. Þar segir að ljóst sé að verkefni af þeirri stærðargráðu sem um ræðir falli undir gildissvið laga um opinber innkaup, og undir valdsvið kærunefndar útboðsmála. Þar er sagt að samningsgerð við Aikan hafi verið í samræmi við lög um opinber innkaup, og vísað til lagagreinar um samningskaup án undangenginnar útboðsauglýsingar. Þar segir að kaup séu heimil „þegar aðeins eitt fyrirtæki kemur til greina af tæknilegum eða listrænum ástæðum eða sökum þess að um lögverndaðan einkarétt er að ræða“. Á þessu atriði grundvallast kæran. Kærendur segja að það liggi fyrir að margir geti boðið þessa tæknilausn. Því standist ekki rökstuðningur Sorpu með vísan til lagagreinar um að aðeins eitt fyrirtæki hafi komið til greina af tæknilegum ástæðum eða um einkarétt sé að ræða.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira