Garðar Örn féll á þrekprófi á dögunum Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. júlí 2014 07:00 Garðar Örn reynir aftur við prófið fyrir 5. ágúst. Fréttablaðið/Daníel
Garðar Örn Hinriksson, einn besti dómari Pepsi-deildar karla í knattspyrnu, féll á miðsumars þrekprófi KSÍ í síðustu viku, en þetta staðfesti Magnús Már Jónsson, dómarastjóri knattspyrnusambandsins, við Fréttablaðið í gær. „Fyrir sumarið taka menn þrekpróf sem gildir til 6. ágúst, þannig að þótt menn falli í fyrstu tilraun á prófinu um mitt sumar geta þeir dæmt til 5. ágúst þegar sjúkraprófið fer fram,“ segir hann. Garðar var því á græna miðanum, ef líkja má þessu við að fólksbíll hafi ekki komist í gegnum skoðun, þegar hann dæmdi leik KR og Breiðabliks í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport síðastliðið sunnudagskvöld. Þar gaf Garðar Örn markverði KR, Stefáni Loga Magnússyni, rautt spjald fyrir brot utan teigs sem flestir eru sammála um að hafi verið rangur dómur. Hann hafði einnig mark af Blikum þegar hann flautaði of snemma í eitt skiptið, en taka verður fram að Garðar var oft frábærlega staðsettur í leiknum og dæmdi í heildina ágætlega. Magnús viðurkennir að það sé ekki besta lausnin að dómarar dæmi eftir að hafa fallið á þrekprófi og segir að menn hafi velt því fyrir sér að breyta fyrirkomulaginu. Það sé þó hægara sagt en gert. „Ef við myndum gera þetta öðruvísi værum við einfaldlega í vandræðum með að manna leiki. Það er alveg haugur af dómurum sem á eftir að taka prófið meira að segja. Við vorum til dæmis með fjóra menn í Noregi á dögunum sem vitaskuld komust ekki í prófið,“ segir Magnús. Dómarastjórinn segir það ekki óalgengt, að menn dæmi á milli miðsumarsprófs og sjúkraprófs. „Þetta er gífurlega krefjandi próf og dagsform manna er mismunandi. Við gefum mönnum því svigrúm í þessar tvær vikur til að klára prófið.“ En hvað gerist ef menn falla 5. ágúst? „Þá færðu ekki að dæma áfram. Nema kannski ef það verður sjúkrapróf 10. ágúst. Við höfum lent í því að menn fái ekki að klára mótið.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Körfubolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur.“ Fótbolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Dagskráin í dag: Undanúrslit deildabikarsins og Lokasóknin hitar upp fyrir Ofurskálina Sport Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Fleiri fréttir Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Sjá meira