Innlent

Vilja ekki 31 borgarfulltrúa

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Fimmtán aðalfulltrúar eiga sæti í borgarstjórn Reykjavíkur.
Fimmtán aðalfulltrúar eiga sæti í borgarstjórn Reykjavíkur. Fréttablaðið/Anton
„Greinilegt er að borgarfulltrúar Samfylkingar, Besta flokksins/Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna líta sem fyrr með velþóknun til þess að borgarfulltrúum í Reykjavík verði fjölgað úr fimmtán í 23 til 31,“ segir í bókun sjálfstæðismanna borgarstjórn Reykjavíkur.

Sjálfstæðismenn bentu á að samkvæmt lögum þurfi sveitarfélög með yfir 100 þúsund íbúa að hafa þennan fjölda aðalmanna í sveitarstjórn í síðasta lagi eftir næsta kjörtímabil. Lögðu þeir til að borgarstjórn skoraði á Alþingi að endurskoða þetta lagaákvæði svo borgarstjórn hafi sjálfdæmi um fjölgun fulltrúanna.

„Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fara þá óvenjulegu leið að gera öðrum upp skoðanir í bókun sinni. Færi betur á því að þeir létu duga að bóka eigin afstöðu,“ bókuðu borgarfulltrúar Besta flokksins, Samfylkingar og Vinstri grænna.

Bentu fulltrúar Besta flokksins, Samfylkingar og Vinstri grænna á að borgarstjórn hefði í febrúar samþykkt samhljóða óbreyttan fjölda borgarfulltrúa til ársins 2018. Rétt væri að láta það bíða nýrrar borgarstjórnar að taka afstöðu til umræddds lagaákvæðis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×