Innlent

Áhyggjur af ónæmi gegn sýklalyfjum

Freyr Bjarnason skrifar
Ónæmi við sýklalyfjum er ekki stórt vandamál hér á landi, að minnsta kosti enn sem komið er.
Ónæmi við sýklalyfjum er ekki stórt vandamál hér á landi, að minnsta kosti enn sem komið er. Fréttablaðið/Anton
„Þetta er virkilega eitthvað sem við þurfum að hafa áhyggjur af,“ segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir.

Í nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunar er greint frá því að ónæmi gegn sýklalyfjum sé að verða alvarleg ógn við heilsufar fólks um heim allan. Stofnunin rannsakaði gögn hjá 144 löndum og er Ísland eitt af þeim.

Aðspurður segir Haraldur að sem betur fer sé ónæmið ekki stórt vandamál hér á landi, enn sem komið er. „Við reynum að spyrna við fótum og passa upp á þetta þannig að þetta nái ekki dreifingu hérna. Við könnum fólk sem er að leggjast inn á spítala og reynum að fá fólk til að nota sýklalyf með skynsamlegum hætti.“

Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins áætlar að í Evrópu einni komi upp um það bil 400 þúsund sýkingar á ári hverju af völdum ónæmra sýkla sem leiða til um 25 þúsund dauðsfalla. Haraldur veit ekki til þess að dauðsföll hafi orðið á Íslandi sem rekja megi beint til ónæmis. Engu að síður segir hann að ýmis vandamál skapist vegna þess. „Þetta kostar meira og það verða lengri legur og vandræði sem því fylgja. Það versta sem gerist er ef bakteríur verða ónæmar fyrir öllu.“

Á sýklafræðideild Landspítala er fylgst náið með þróun sýklalyfjaónæmis, og á heimasíðu deildarinnar eru birtar árlegar yfirlitstöflur um sýklalyfjanæmi valinna sýkla allt frá árinu 1998. Þar má sjá að sýklalyfjaónæmi hefur haldist nokkuð óbreytt frá árinu 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×