Írakar létu hótanir ekki hindra sig Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. maí 2014 07:00 Á kjörstað í Basra Kona heldur á barni sínu og atkvæðaseðli, þar sem hún býr sig undir að kjósa. Fréttablaðið/AP
Mestar líkur þykja á að Dawa, flokkur Núrí al Malíkis forsætisráðherra, fari með sigur af hólmi í þingkosningum í Írak, sem haldnar voru í gær. Gríðarlegur fjöldi lögregluþjóna og hermanna var sendur út á götur og torg í landinu til að gæta öryggis við kosningarnar. Í höfuðborginni Bagdad voru eftirlitsstöðvar með um það bil fimm hundruð metra millibili og vopnaðar öryggissveitir óku um borgina, sem að öðru leyti var að mestu laus við umferð bifreiða. Ofbeldi hefur verið mikið í aðdraganda kosninganna, sprengjuárásir tíðar og hótunum um frekari árásir ætlað að fæla fólk frá því að mæta á kjörstað. Ástandið hefur ekki verið verra síðan 2008. Undanfarna viku hafa á annað hundrað manns látið lífið í árásum af ýmsu tagi. Þrátt fyrir öryggisráðstafanir tókst andófsmönnum að gera árásir á nokkrum stöðum í landinu, með þeim afleiðingum að í það minnsta fimm manns létu lífið. Þetta eru þriðju þingkosningarnar þar frá því Saddam Hussein var steypt af stóli árið 2003. Al Malíki hefur verið forsætisráðherra í átta ár. Hann þykir engan veginn líflegur stjórnmálamaður, en þeim mun harðari gegn andstæðingum sínum. Hann er sjíamúslími, en þeir eru í meirihluta í landinu og fastlega er reiknað með því að flokkur al Malíkis beri sigur úr býtum í kosningunum. Súnnímúslímar hafa verið ósáttir við al Malíki og segja hann draga taum sjía á kostnað súnnía. Ofbeldið undanfarið hefur að mestu verið á ábyrgð súnnískra skæruliðasamtaka, sem nefnast Íslamskt ríki í Írak og Austurlöndum nær. Liðsmenn þeirra hafa einnig barist í Sýrlandi gegn Bashar al Assad forseta, og hafa notað reynslu sína af átökunum þar óspart til að herja á sjíamúslíma í Írak. Í kosningunum árið 2010 lagði al Malíki mikla áherslu á að ná breiðri sátt í landinu á milli sjía, súnnía og kúrda. Illa gekk þó að koma saman samsteypustjórn og al Malíki virðist hafa misst áhugann á sáttum. Að minnsta kosti varð hann æ harðari gagnvart andstæðingum sínum og stendur nú í stórræðum gegn uppreisnaröflunum, sem eflast með hverjum mánuðinum.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira