Stefán Logi: Ég hef átt mjög jákvæð samtöl við KR í gegnum árin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. janúar 2014 06:00 á heimleið KR-ingar eru mögulega að endurheimta Stefán Loga frá Noregi. fréttablaðið/valli
KR hefur nú misst báða markverði sína frá síðasta tímabili en í gær gekk danska liðið Nordsjælland frá samningum við Rúnar Alex Rúnarsson, markvörð U-21 liðs Íslands. Áður hafði landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson gengið til liðs við Sandnes Ulf í Noregi. „Þetta ætti vonandi að skýrast á allra næstu dögum,“ sagði Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, við Fréttablaðið spurður um markvarðastöðu liðsins næsta sumar. Áður hefur verið greint frá því að Stefán Logi Magnússon, fyrrum KR-ingur, hafi átt í viðræðum við KR. Kristinn staðfestir það og bætir við að félagið hafi ekki átt í viðræðum við nokkurn annan markvörð. Stefán Logi segist sjálfur ekki útiloka neitt en hann gekk í raðir Lilleström frá KR árið 2009. Samningur hans rann út nú um áramótin. „Ég hef átt mjög jákvæð samtöl við KR í gegnum árin. Ég er mikill KR-ingur og það hefur ekkert breyst,“ segir Stefán Logi. „Vissulega eru möguleikar hér úti en ég hef virkilega mikinn áhuga á KR. Það er margt spennandi í gangi þar og væri gaman að geta lagt sitt af mörkum þar.“ Stefán Logi er vongóður um að geta gengið frá sínum málum sem allra fyrst. „Hlutirnir eru langt á veg komnir – það þarf bara að setjast yfir einum kaffibolla til að klára málin.“ Stefán Logi hefur æft með Lilleström að undanförnu og segist í góðu formi. „Ég tók mér gott frí fyrir jól og það var í raun fyrsta almennilega fríið mitt í langan tíma. Svo hef ég verið á æfingum með Lilleström sem hefur verið frábært. Ég verð því tilbúinn þegar kallið kemur – hvaðan sem það verður.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“ Enski boltinn Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Enski boltinn Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Enski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 118-67 | Toppliðið tekið til slátrunar Körfubolti Sprengja frá Salah: Gerður að blóraböggli og brostið samband við Slot Enski boltinn Lando Norris er Formúlu 1 heimsmeistari í fyrsta sinn Formúla 1 „Ég sem faðir er ekkert eðlilega stoltur af honum“ Fótbolti Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Fleiri fréttir Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Sjá meira