Jóhannes Bjarni fær ekki að verja Ingólf Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 26. febrúar 2014 10:36 Úr Héraðsdómi í síðustu viku. vísir/valli
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að skipan Jóhannesar Bjarna Björnssonar, verjanda Ingólfs Helgasonar, eins ákærða í markaðsmisnotkunarmáli Sérstaks saksóknara gegn Ingólfi og átta öðrum fyrrverandi stjórnendum Kaupþings, yrði felld úr gildi. Við þingfestingu málsins í apríl 2013 var Jóhannes Bjarni skipaður verjandi Ingólfs að hans ósk. Ágreiningur kom upp í fyrirtöku málsins í síðustu viku þegar dómari gerði grein fyrir þeirri fyrirætlan sinni að víkja verjanda frá störfum. Ástæðan var að dómaranum varð það ljóst að meðal gagna málsins er skýrsla lögreglu um hlerun á símtali Jóhannesar Bjarna og Bjarka Diego sem einnig er ákærður í málinu. Símtalið sem um ræðir er frá 12. apríl 2010. Sækjandi í málinu vildi ekki draga skýrsluna til baka en þó hefði hann ekki í hyggju að leiða Jóhannes Bjarna sem vitni í málinu. Ekki væri þó útilokað að það myndi gerast. Jóhannes Bjarni mótmælti ákvörðun héraðsdómara og var hún tekin til úrkskurðar. Hann kærði svo ákvörðun héraðstómara um að fella skipun hans úr gildi til Hæstaréttar.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Sjá meira