Innlent

Níu hlutu hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Jón Gnarr ásamt starfsfólki og unglingum í félagsmiðstöðinni Öskju.
Jón Gnarr ásamt starfsfólki og unglingum í félagsmiðstöðinni Öskju. MYND/REYKJAVÍK
Níu verkefnum og starfsstöðvum skóla- og frístundarsviðs voru veitt hvatningarverðlaun Reykjavíkur í gær. Jón Gnarr borgarstjóri veitt verðlaunin við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal Ráðhússins.

Vinna að móðurmálsstuðningi fyrir pólsk börn 

Samstarfsverkefni leikskólanna Björtuhlíðar, Hálsaskóga, Langholts og Laugasólar fékk verðlaun. En með verkefninu er unnið að því að móta og þróa gæðastarf með yngstu börnunum og gengið út frá því að börn séu getumikil og hæf til ákvarðanatöku í lífi sínu.

Leikskólinn Ægisborg fékk verðlaun fyrir sérkennslu og móttöku barna með sérþarfir. Í leikskólanum Garðaborg hefur verið unnið að móðurmálsstuðningi fyrir pólsk börn í leikskólum Reykjavíkur og fékk leikskólinn verðlaun fyrir. Garðaborg fékk einnig verðlaun fyrir ljóðabókina Nú er hann beinagrind upp í himninum, Lýðræði í Garðaborg og bókina Velkominn í leikskólann.

MYND/REYKJAVÍK
Styrkja sjálfsmynd stúlkna

Tónlist skógarins og Ártúnsskóli fengu verðlaun fyrir samþætt þróunarverkefni og þverfaglegt samvinnuverkefni 3. og 5. bekkjar Í Ártúnsskóla. Fellaskóli fékk verðlaun fyrir verkefni sem miðar að því að því að skapa samfelldan og heildstæðan skóladag fyrir nemendur í 1. og 2. bekk Fellaskóla. Klúbbaskólinn í Norðlingaskóla fékk svo verðlaun fyrir stuðningsúrræði við annað skólastarf í Norðlingaskóla fyrir nemendur á öllum aldri sem þurfa fjölbreytt nám.

MYND/REYKJAVÍK
Fatlaðir unglingar ekki öðruvísi

Frístunda Frístundaheimilið Eldflaugin fékk verðlaun fyrir verkefni sem miðar að því að styrkja sjálfsmynd stúlkna 1. og 2. bekk í Hlíðaskóla sem eru í kjörþögli og/eða með mikinn kvíða.  Félagsmiðstöðin Fjörgyn fékk verðlaun fyrir verkefni þar sem unglingum var boðið upp á fræðslu um árangursrík samskipti. Loks fékk félagsmiðstöðin Askja verðlaun fyrir það markmið að sýna fram á að fatlaðir unglingar eru ekkert öðru vísi en ófatlaðir og hafa sömu áhugamál og væntingar.

Sérstaka viðurkenningu fengu svo samstarfsverkefni Vættaskóla, félagsmiðstöðvarinnar Dregyn, frístundaheimilisins Brosbæs og Hvergilands fyrir starfsnám unglinga á frístundaheimili. Og lýðræðisverkefni Frostaskjóls og Vesturbæjarskóla. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×