Innlent

Svavar fór einnig í viðtal hjá útvarpsstjóra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ingólfur Bjarni Sigfússon, Rakel Þorbergsdóttir, Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Svavar Halldórsson hafa öll farið í gegnum ítarlegt starfsumsóknarferli vegna starfs fréttastjóra RÚV. Vonir standa til að hægt verði að tilkynna um nýjan fréttastjóra og ráðningu í aðrar yfirmannsstöður á RÚV á morgun.

„Það var alltaf planið að þetta yrði klárað fyrir páska og gert opinbert um leið,“ segir Sigrún Hermannsdóttir, fulltrúi útvarpsstjóra. Markmiðið hafi verið að tilkynna um ráðningar í síðasta lagi á morgun, miðvikudag fyrir páska, en óljóst sé hvort það náist.

Alls sóttu tólf um starf fréttastjóra. Herma heimildir Vísis að af þessum tólf hafi níu uppfyllt hæfniskröfur og verið boðaðir í viðtal sem Capacent stóð fyrir. Í framhaldinu var þeim fjórum, sem nefndir eru að ofan, boðið í frekari próf. Var persónuleikapróf meðal þess sem hin fjögur fræknu þreyttu.

Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri var svo sjálfur viðstaddur viðtöl sem þau Ingólfur Bjarni, Rakel, Sigríður og Svavar mættu til í gær. Sigrún segir útvarpsstjóra hafa vonast til þess að ferlið gengi sem hraðast svo nýir yfirmenn á RÚV gætu hafið störf strax eftir páska.

„Það hefur reynst erfitt að boða suma í viðtöl. Þetta tekur sinn tíma,“ segir Sigrún. Hún á ekki von á öðru en að tilkynnt verði um ráðningu í öll störfin níu á sama tíma.

Alls verða ráðnir níu yfirmenn til viðbótar við þá yfirmannsstöðu sem Magnús Geir gegnir nú þegar. Útvarpsstjóri hefur lagt á það áherslu að kynjahlutföll verði með jafnara móti þegar komi að yfirmannsstöðum. Staðan er í það minnsta enn jöfn sé horft til fréttastjórastöðunnar þar sem tveir karlar og tvær konur keppast um stöðuna.

„Magnús Geir er mikill jafnréttissinni og það verður leitast við að hafa kynjahlutföll sem jöfnust,“ segir Sigrún. Auðvitað verði þó enginn ráðinn af því hún sé kona heldur fyrst og fremst horft til hæfni umsækjenda.

Aðrir sem sóttu um stöðu fréttastjóra voru Benedikt Sigurðsson Aðstoðarmaður ráðherra, Hanna Lára Kristjánsdóttir, Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttamaður, Hlynur Gauti Sigurðsson Verkefnastjóri, Jakob Jóhann Sveinsson verkfræðinemi og sundkappi, Jóhann Hauksson fréttamaður og fyrrverandi dagskrárstjóri, Jóhann Hlíðar Harðarson fréttamaður og Pálmi Jónasson fréttamaður.


Tengdar fréttir

Óðinn sækist ekki eftir endurráðningu

Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, mun starfa við hlið nýs fréttastjóra til 1.október næstkomandi. Í kjölfarið mun hann hefja störf sem frétta- og dagskrárgerðarmaður

Hafa sótt um stöðu fréttastjóra á RÚV

Heiðar Örn Sigurfinnsson, Jóhann Hlíðar Harðarson, Rakel Þorbergsdóttir og Svavar Halldórsson sækjast öll eftir því að leiða Ríkisútvarpið inn í nýja tíma sem fréttastjóri RÚV.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×