Syndir í sólarhring: Þakklátur fyrir að vera á lífi Bjarki Ármannsson skrifar 20. maí 2014 22:00 Allur ágóði af sundinu rennur til endurbóta á aðstöðu fyrir foreldra á Landspítalanum en Guðmundur dvaldi þar sjálfur lengi við fæðingu dóttur sinnar. Mynd/Aðsendar
Guðmundur Hafþórsson, sundkappi og einkaþjálfari, ætlar að þreyta sólarhrings áheitasund í sumar til að styrkja Líf, styrktarfélag Kvennadeildar Landspítalans. Allur ágóði af sundinu rennur til endurbóta á aðstöðu fyrir foreldra sem þurfa að dvelja langdvölum á Landspítalanum vegna veikinda barna sinna, en Guðmundur og kona hans upplifðu það sjálf í janúar þegar dóttir þeirra fæddist með aukarás í hjarta. Áheitasöfnun fer af stað á morgun og af því tilefni tók fréttastofa Guðmund tali. „Auðvitað stækkar þetta með hverjum deginum,“ segir Guðmundur aðspurður hvort hann sé farinn að kvíða stóra deginum. „Maður hefur heyrt ýmsar draugasögur um svona sund. Ég hef helst áhyggjur af andlega hlutanum, að láta mér ekki leiðast.“ Guðmundur var lengi vel ofarlega á lista yfir bestu sundmenn landsins, þó hann hafi aldrei orðið atvinnumaður. „Örn Arnarson var náttúrulega númer eitt í baksundi og ég var númer tvö,” segir hann. „Ég var lengi í þessum pakka og það var hátt fjall að klífa, að elta hann. En ég tel mig hafa verið nokkuð góðan.” Hann þurfti þó að endurmeta eigin líkamlega getu eftir að hann höfuðkúpubrotnaði í líkamsáras á nýársnótt 2011. „Ég var ekki að keppa á þeim tíma, þarna var ég orðinn þjálfari,“ segir hann. „Á þessum tímapunkti bjó ég í Kanada og var að þjálfa þar og var bara heima í jólafríi. Og ég lendi í þessu höggi og höfuðkúpubrotna. Þetta var bara eitt högg í andlitið, alveg tilefnislaus árás og ég skall í jörðina og höfuðkúpubrotnaði. Það verður blæðing á milli heila og höfuðkúpu og þarna á tímabili var ég í lífshættu.“Nýtur þess að vera á lífi Guðmundur þurfti að fara í aðgerð þar sem tappað var af blóði frá heila. Hann var á spítalanum í samtals tíu daga. Hann útskrifaðist af heila- og taugadeild þann 12. janúar en var þá langt frá því að vera búinn að ná sér að fullu. „Þarna tók við endurhæfing, að vinna mig upp aftur. Læknar sögðu mér að ég gæti ekki litið á mig sem afreksmann í þessari endurhæfingu, ég þyrfti að fara alveg til baka og líta á sjálfan mig bara sem byrjanda.“ Fyrstu mánuðirnir eftir slysið einkenndust af mörgum óvæntum og síður skemmtilegum uppgötvunum fyrir fyrrum afreksmanninn. „Það kom svona smá sjokk í febrúar, ég fór þá í sund með fjölskyldunni og gat ekki synt tvær ferðir. Þá var ég bara búinn á því. Þá tók við þessi endurhæfing, sem fólst í rauninni í því að ganga í heilan mánuð. Ég fór aftur til Kanada í lok febrúar og þá hélt ég þessu áfram sjálfur, gekk einn og hálfan kílómeter til að byrja með og var þá með púls upp á 190 og bara búinn á því. Síðan jók maður æfingarnar, ég byrjaði á því í apríl að skokka örlítið inn á milli og gera æfingar heima fyrir. Í ágúst var ég byrjaður að skokka hringinn alveg.“ Guðmundur er nú kominn í prýðilegt form á ný, en segist enn finna reglulega fyrir áhrifum slyssins á líkamann. „Ég fékk hausverki og ég fæ tak í bakið reglulega. Þetta er eitthvað sem ég lifi við og maður tæklar bara hvern dag í einu. Þegar maður er heill heilsu, þá er maður ánægður og núna fyrir sundið kemur það fyrir að ég fæ tak í bakið. Þá bara syndi ég ekkert í tvo, þrjá daga svo heldur maður áfram. Þannig að þetta er bara eitthvað sem ég lifi við og nýt þess bara að vera á lífi.“Syndir fyrir Landspítalann Það var svo í fyrra sem Guðmundur ákvað að setja upp lista yfir þau markmið sem hann ætlaði sér að ná fyrir 35 ára afmælið sitt árið 2015. Á þeim lista, ásamt því að fara í fallhlífarstökk og taka þátt í Ólýmpískri þríþraut, var meðal annars að finna 24 klukkustunda sundið. „Þetta byrjaði bara sem ég sjálfur,“ segir hann um sundævintýrið. „Síðan þegar þetta fréttist út í gegnum Facebook-síðu sem ég setti upp þá fór ég að fá fyrirspurnir frá fólki: Hvernig get ég verið með? Hvað get ég gert?“ Hann ákvað þá að gera sundið að áheitasundi sem allir gætu tekið þátt í með honum til þess að afla fjár fyrir verðugt málefni. Guðmundur gaf sig á tal við Landspítalann og spurði hvað það væri helst sem vantaði á stofnunina. „Þeir sögðu mér að foreldraaðstaðan væri eitt það helsta sem mætti laga og bentu mér á að tala við Líf,“ segir hann. Þetta var í janúar á þessu ári. Seinna í sama mánuði fékk Guðmundur að kynnast aðstöðunni á vökudeild af eigin reynslu. „Ég og konan, við eignuðumst barn núna 19. janúar. Þá erum við í tíu daga inni með stelpuna okkar. Hún er með aukarás í hjartanu. Þá kynntumst við því af eigin raun hvað þetta er frábær stofnun og hvað það er mikilvægt að fjölskyldunni líði vel.“ Til að vekja athygli á áheitasundinu hefur Guðmundur skorað á frambjóðendur í komandi sveitastjórnarkosningum í Garðabæ í boðsundskeppni á morgun. „Mér skilst að öll framboðin hafi sýnt því áhuga að mæta,“ segir Guðmundur. „Það er svona spurning með tímann, upp á vinnuna og svona, en það tóku allir vel í þetta og ég held að flest framboðin verði þarna.“
Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sjá meira