Michelin-biti á Miklubraut? Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 28. júní 2014 10:00 Agnari líður vel í London og er ekki á heimleið. "Mér finnst gaman að hafa fullt í fangi og mikið fyrir stafni. Veitingabransinn er harður og dagurinn sem maður slakar á og heldur að maður sé að gera rétt veður dagurinn sem allt fer niður á við." mynd/úr einkasafni
Niðurnídd lúgusjoppa við Miklubraut fær á sig stjörnuglampa í júlí þegar Michelin-matreiðslumeistarinn Agnar Sverrisson opnar þar hágæða skyndibitastað og teflir fram tveimur mjög klístruðum og djúsí réttum. „Það hefur náttúrlega ekkert gengið upp í þessum skúr hingað til en það þykir mér bara betra og mjög skemmtileg áskorun,“ segir Agnar sem í fyrstu fussaði og sveiaði þegar vinur hans, Gylfi Harðarson matreiðslumaður, stakk upp á þeir opnuðu einstakan skyndibitastað í gömlu Nestis-sjoppunni við Miklubraut. „Við Gylfi lærðum saman til kokks og höfum grínast með að opna saman veitingastað heima á Íslandi í gegnum tíðina. Ég hvatti hann svo í rælni til að svipast um eftir húsnæði í miðbænum en eftir árangurslausa leit ók Gylfi fram hjá skúrnum góða á Miklubraut og sendi mér myndir. Mér fannst hugmyndin af og frá í fyrstu en þegar ég sá lúguna og möguleikann á heimteknum lúgumat varð ég viss um að skúrinn væri betri staður en nokkur annar,“ segir Agnar brosmildur og fullur tilhlökkunar. Agnar hefur undanfarin sextán ár búið í Lundúnum og rekur þar Michelin-veitingastaðinn Texture við Portman Square og þrjá vínbari undir nafninu 28°50° sem bjóða upp á léttan franskan mat með góðum vínum á góðu verði. „Ég þori nú ekki að lofa Michelin-stjörnu á Miklubraut en við viljum gera þetta eins gott og það gerist og vöndum okkur í hvívetna. Þannig vinnum við,“ segir Agnar sem hefur metnað í fyrirrúmi.Bragðsterkt og gómsætt af gömlum beljum Þeir Agnar og Gylfi hafa umturnað skúrnum á Miklubraut, með dyggri hjálp föður Agnars, en til stendur að opna staðinn um miðjan júlí. „Við erum að opna nokkuð sem aldrei hefur sést né þekkst á Íslandi og bjóðum eingöngu upp á tvo rétti á matseðli; ostborgara og svínarif. Mér hefur lengi þótt vanta slíkan stað heima, þar sem boðið er upp á toppgæða skyndibita sem hægt er að elda á skammri stund. Hér á Englandi njóta slíkir staðir vinsælda því fólk kann að meta að geta fengið sér almennilega hamborgara, svínarif eða annað gómsætt án þess að það taki langan tíma að lesa matseðil eða elda matinn.“ Agnar hefur lagt mikla vinnu í hamborgaragerðina og meðal annars smakkað blindandi fjórtán prufur af nautakjöti frá íslenskum framleiðendum, til þess eins að finna rétta kjötið. „Hamborgari er ekki bara hamborgari, því kjötið skiptir öllu máli. Ostborgarinn á nýja staðnum verður töluvert þykkari en gengur og gerist, fituprósentan einstök og kjötið ekki af ungnautum heldur gömlum beljum, sem er mun bragðbetra. Það skiptir engu af hvoru kyni dýrsins kjötið kemur heldur er staðreynd að ungnautakjöt er mun bragðminna. Það féllu bara allir fyrir auglýsingabrellu um ungnautakjöt á árum áður og halda enn að það sé best í heimi, en svo er svo sannarlega ekki.“ Agnar lofar hreinni upplifun í skyndibita, bragðbesta matnum og besta verðinu í bænum. Hann hefur meðal annars látið sérsmíða robata-grill í Bretlandi sem gefur sterkt reykjarbragð í kjötið. „Við leggjum áherslu á töff innviði í hönnun og úrvals hráefni í æðislegum mat. Hægt verður að borða inni og sækja mat í lúguna. Þarna verður gaman að koma, þarna gerast ævintýrin og verður gaman að upplifa meira mannlíf og eril við Miklubraut.“Raymond Blanc bítur fyrsta bitann Agnar mætir með frægasta kokk Bretlands á opnun staðarins í júlí, sjálfan Raymond Blanc. „Raymond verður fyrstur til að smakkar ostborgarann og um leið set ég nafn mitt á staðinn og stend og fell með því hvernig gengur. Ég færi enda ekki út í þetta nema ég virkilega vissi að hugmyndin væri góð.“ Agnar segir enga minnkun að því fyrir dáðan kokk að elda hamborgara. „Ég lít svo á að sé maður með topp hráefni skipti engu hvort maður snúi hamborgurum eða eldi dýrindis nautasteik. Það þarf að bera sömu virðingu fyrir því öllu.“ Nýi staðurinn við Miklubraut hlýtur nafnið Dirty Burgers & Ribs. „Því allt verður þetta dálítið „dirty“ og djúsí og sannarlega verður maður dálítið kámugur við að borða svínarif og borgara. Nafnið á því vel við,“ segir Agnar sem lofar því að sýna sig og sjá aðra á Dirty Burgers & Ribs þegar hann á erindi heim til Íslands. „Ég mun alltaf kíkja á stemninguna og gaman að hitta fólk og spjalla. Ef ég er í stuði steiki ég einn og einn hamborgara og klístruð svínarif. Ekki spurning,“ segir hann og hlær.
Mest lesið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Lífið Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Lífið Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Glatkistunni lokað Menning „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Tíska og hönnun Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Sjá meira