Ég gæti ekki spilað gegn Stjörnunni Henry Birgir Gunnarsson skrifar 7. nóvember 2014 07:15 Daníel fór á kostum eftir að Stjarnan tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Kaplakrika. fréttablaðið/andri marinó
Daníel Laxal, varnarmaður Stjörnunnar, framlengdi í gær samning sinn við Stjörnuna til næstu þriggja ára. Daníel varð Íslandsmeistari með liðinu í sumar og hefur verið á mála hjá félaginu alla sína tíð. Hann á að baki meira en 200 leiki í meistaraflokki og hefur skorað í þeim 10 mörk. Hann spilaði alla 22 leiki liðsins í sumar en Stjarnan tapaði ekki leik allt tímabilið. „Það hafði ekkert félag samband við mig. Ég var svo sem búinn að gefa það út að ég vildi vera áfram í Garðabænum þannig að önnur lið voru ekkert að trufla mig,“ segir Daníel en hann segir það ekkert hafa heillað að prófa eitthvað nýtt á þessum tímapunkti á ferlinum. „Ég held ég hreinlega geti ekki farið frá Stjörnunni því ég gæti ekki hugsað mér að spila gegn félaginu.“ Þó svo Daníel hafi verið með betri leikmönnum Pepsi-deildarinnar undanfarin ár þá hefur ekkert orðið úr því að hann færi í atvinnumennsku. „Ég er hættur að hugsa um það núna. Hér áður hugsaði maður að það kemur á næsta ári en svo kom það aldrei. Ef það kemur þá kemur það en ég er ekkert að velta mér upp úr þessu lengur. Ég græt mig ekkert í svefn á kvöldin.“ Daníel er 28 ára gamall en lék sinn fyrsta deildarleik í meistaraflokki sumarið 2004, er Stjarnan lék í 1. deild karla. Hann er þegar orðinn leikjahæsti leikmaður Stjörnunnar í efstu deild og ætlar sér að bæta það met. „Ég ætla að vera langleikjahæsti leikmaður Stjörnunnar. Það er markmiðið núna. Síðustu ár í Stjörnunni hafa líka verið frábær og vonandi höldum við áfram að byggja ofan á árangur sumarsins,“ segir Daníel en er hann að vonast eftir styttu af sér fyrir utan Samsung-völlinn? „Ég er að berjast við Rúnar þjálfara um að fá styttuna,“ segir Daníel léttur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Fleiri fréttir Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Sjá meira