Jón Guðni skoraði og fékk rautt á móti Val | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. maí 2014 12:15 Jón Guðni Fjóluson fagnar markinu sem hann skoraði í fyrri hálfleik. Vísir/Stefán
Fjórðu umferð Pepsi-deildar karla lýkur í kvöld með tveimur leikjum. Víkingur tekur á móti Fylki á gervigrasvellinum í Laugardal en á Vodafonevellinum eigast við erkifjendurnir Valur og Fram. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en útsendingin hefst klukkan 19.15. Pepsi-mörkin eru svo á dagskrá beint eftir leik en þau hefjast klukkan 22.00. Valur og Fram hafa marga hildi háð í gegnum tíðina en 2-2 jafntefli Reykjavíkurrisanna á Laugardalsvellinum sumarið 2010 bauð upp á mikla skemmtun; fjögur mörk og rautt spjald. Valur tók forystuna í leiknum með fallegu skallamarki Guðmundar Steins Hafsteinssonar en hann leikur með Fram í dag eftir tveggja ára dvöl í Ólafsvík. Daninn DanniKönig bætti við forystuna á 31. mínútu með öðru skallamarki og Valsmenn í góðum málum, 2-0 yfir eftir hálftíma. Undir lok fyrri hálfleiks jafnaði JónGuðniFjóluson, sem í dag leikur sem atvinnumaður hjá Sundsvall í Svíþjóð, leikinn með skallamarki en hann hafði betur í baráttunni við Kjartan Sturluson. Kjartan lagði skóna á hilluna eftir sumarið. Jón Guðni átti eftir að koma frekar við sögu sem og bakvörðurinn SamTillen. Englendingurinn, sem nú leikur með FH en verður ekkert með í sumar vegna fótbrots, braut allhressilega á kollega sínum í Valsliðinu, Stefáni Jóhanni Eggertssyni, en slapp með gult spjald.Reynir Leósson, miðvörður Vals sem hafði tveimur árum áður spilað með Fram, fór mikinn eftir tæklinguna og heimtaði að KristinnJakobsson myndi sýna Tillen rautt. Reynir er, eins og allir vita, sérfræðingur Pepsi-markanna í dag. Fimmtán mínútum eftir að Tillen fékk gula spjaldið skoraði hann beint úr aukaspyrnu sem átti að vera fyrirgjöf. Jón Guðni Fjóluson gerði sig líklegan til að skalla boltann í netið en Kristinn Jakobsson mat atvikið þannig að enginn hafi komið við knöttinn. Staðan jöfn, 2-2, og þrettán mínútur eftir. Framarar léku manni færri þessar þrettán mínútur þar sem Jón Guðni fékk rautt spjald á leiðinni til baka. Það sem enginn sá, nema Kristinn Jakobsson, var að miðvörðurinn öflugi sparkaði í fót Danni Könings sem lá eftir í teignum. Um þetta var mikið rætt í Pepsi-mörkunum á sínum tíma. Þessi leikur var í tíundu umferð mótsins en Fram hafnaði að lokum í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar en Valur í því sjöunda. Það kostaði GunnlaugJónsson starfið á Hlíðarenda en hann þjálfar nú uppeldisfélag sitt ÍA. ÞorvaldurÖrlygsson, sem þá stýrði Fram, er nú þjálfari HK og nýr sérfræðingur Pepsi-markanna. Hér að neðan má sjá mörkin í leiknum með lýsingu SnorraSturlusonar og MánaPéturssonar og einnig tæklinguna hans Tillens og rauða spjaldið sem Jóni Guðni fékk.Mörkin úr leiknum: Tillen tæklar Stefán Jóhann: Jóni Guðni fær rautt:
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Enski boltinn Flagg fer til Dallas Körfubolti Fleiri fréttir Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ KR-ingar í Melabúðinni um stöðu liðsins: „Verða að gyrða sig í brók“ Höskuldur fékk tveggja leikja bann eftir ofsalega framkomu Furðar sig á fjarveru Lárusar Orra: „Finnst þetta skrítið“ John Andrews og Björn reknir Óskar láti gagnrýnisraddir úr Vesturbæ sem vind um eyru þjóta Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Sjáðu mörkin úr Bestu: Valur rústaði KR og tvö rauð fóru á loft í Kópavogi Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Uppgjörið: Valur-KR 6-1 | Valsmenn rassskelltu KR-inga Uppgjörið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögulegan sigur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 1-1 | Dramatík í Kópavogi Aldrei séð föður sinn jafn glaðan og sáttan í einu og sama verkefninu Sjáðu mörkin úr Bestu þar sem Gylfi Þór fór mikinn og glæsimark var skorað „Gæðin í liðinu munu alltaf skora mörk“ Uppgjör: ÍA-Stjarnan 0-3 | Stjarnan upp í þriðja sætið eftir sigur á botnliðinu Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga Taplausir ÍR-ingar juku forskot sitt á toppnum Tíu Þórsarar lönduðu fyrsta sigri sínum í þessum mánuði Sigurður Bjartur: Ég fór beint í klippuna Félagarnir í sjokki: Sjáðu stórkostlegt mark Sigurðar Bjarts Fékk símtal á fimmtudaginn og komst að samkomulagi sólarhring síðar Uppgjörið: FH - Vestri 2-0 | Upp um fjögur eftir magnað mark og skalla Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 4-1 | Öruggur sigur Þórs/KA gegn lánlausi liði Víkings Uppgjörið: FH - Valur 1-2 | Valur nældi sér í ofboðslega langþráðan sigur Lárus sagði leikmenn ÍA hætta og stjórnendur sofa á verðinum Sjá meira