Innlent

Jaðaríþróttir undir sama þaki

Freyr Bjarnason skrifar
Sindri Viborg vonast til að komast í nýtt 3.000 fermetra húsnæði með íþróttina parkour.
Sindri Viborg vonast til að komast í nýtt 3.000 fermetra húsnæði með íþróttina parkour. Fréttablaðið/Stefán
Fyrsta fimleikafélagið á höfuðborgarsvæðinu í 43 ár, sem var stofnað fyrir mánuði, leitar nú að húsnæði.

Svo gæti farið að það verði með starfsemi sína í um þrjú þúsund fermetra húsnæði í Reykjavík. Fleiri jaðaríþróttir myndu vera undir sama þaki, þar á meðal quigong, tai chi og jiu jitsu.

Fimleikafélagið var stofnað í kringum frönsku íþróttina parkour, sem hefur notið sívaxandi vinsælda. Yfir sextíu manns mættu á stofnfundinn, sem var framar vonum, að sögn Sindra Viborg, yfirþjálfara Gerplu, sem hefur kennt íþróttina síðustu sjö ár.

Upphaflega stóð til að íþróttin yrði kennd í 1.500 fermetra húsnæði í Vatnagörðum í Reykjavík en ekkert varð af því. „Ef við fáum þetta hús sem við erum að leita eftir núna þá verður það rúmlega tvöfalt stærra,“ segir Sindri, sem telur það hagkvæmt fyrir lítil íþróttafélög að vera undir sama þaki. Peningar sparist með sameiginlegri afgreiðslu og búningsklefum. „Þarna verður hugsanlega hægt að byggja upp kjarna af óhefðbundnum íþróttum.“

Parkour-íþróttin hefur verið kennd í fimleikasölum og víðar, þar á meðal hjá Gerplu, Fylki, Ármanni og í Björk. Þeir sem æfa parkour á höfuðborgarsvæðinu eru um þrjú hundruð talsins og komast færri að en vilja. Skráning í nýja félagið hefst um leið og húsnæðismálin verða komin á hreint.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×