Innlent

Tíu umferðarslys á einni viku

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Lögreglan minnir á að farþegaflutningur á reiðhjólum er stranglega bannaður.
Lögreglan minnir á að farþegaflutningur á reiðhjólum er stranglega bannaður. VÍSIR/GETTY
Þrettán vegfarendur slösuðust í tíu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Fimm slysanna voru reiðhjólaslys, eitt bifhjólaslys, eitt fjórhjólaslys, einn útafakstur og ein aftanákeyrsla. Eitt slys varð svo þegar bifreið var ekið á sjö bifreiðar. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Útafaksturinn varð um klukkan 1:30 aðfararnótt sunnudagsins fór bifreið fram af brúnni við Höfðabakka. Bifreiðinni var ekið suður Höfðabakka og ætlaði ökumaðurinn að beygja vestur Vesturlandsveg. Hann missti hins vegar stjórn á bifreiðinni og hafnaði hún á graseyju á Vesturlandsvegi.  Þrír farþegar voru fluttir á slysadeild til skoðunar. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun auk þess sem bifreiðinni var ekið allt of hratt í beygjunni.

Eitt reiðhjólaslysanna varð á Sundlaugavegi á föstudaginn. Þar voru tveir saman á reiðhjóli og féllu í götuna. Þeir voru ekki með hjálma og hlutu báðir áverka á höfði. Lögreglan minnir á að farþegaflutningur á reiðhjólum er stranglega bannaður. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×