Öll spjót beinast að Se & Hør Birta Björnsdóttir skrifar 6. maí 2014 20:00
Forsaga málsins er sú að nýverið kom út skáldsaga eftir Ken B. Rasmussen, fyrrum blaðamann á Se & Hør, þar sem því er lýst hvernig ónefndur heimildamaður hjá greiðslukortaþjónustunni Nets hafi útvegað blaðamönnum upplýsingar um greiðslukortanotkun þekktra einstaklinga þar í landi. Frásögnin var hermd upp á höfundinn, sem staðfesti að þessi vinnubrögð hefðu verið stunduð á blaðinu árin 2008 til 2012. Þetta var í lok apríl og síðan þá hefur um lítið annað verið fjallað í dönskum fjölmiðlum. Blaðamenn, sem starfandi voru á Se & Hør á umræddu tímabili hafa verið sendir í leyfi og Henrik Qvortrup, fyrrverandi ritstjóra blaðsins, voru settir afarkostir í nýju starfi sínu sem sjónvarpsmaður hjá TV2, að segja sjálfviljugur upp störfum eða vera sagt upp. Hann valdi fyrri kostinn, en þvertekur fyrir það að hafa haft vitneskju um þessa upplýsingaöflun. Meðal upplýsinga sem sendar voru til blaðsins eru greiðslukortafærslur Mary, krónprinsessu Danmerkur, um viðskipti hennar í flugstöð Leifs Eiríkssonar, eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði. Í fyrradag stigu svo tveir fyrrum blaðamenn Se & Hør fram og fullyrtu að starfsmönnum Kastrup flugvallar og flugfélagsins SAS hefði einnig verið greitt fyrir upplýsingar um ferðalög fræga fólksins. Fjölmargir þekktir einstaklingar, sem teknir hafa verið til umfjöllunnar í Se & Hør í gegnum tíðina, hafa nú lagt fram formlega ákæru til lögreglunnar gegn Aller Media, útgáfu félagi Se & Hør, vegna málsins. Þeirra á meðal leikararnir Casper Christensen, Iben Hjelje og Mads Mikkelsen.Karen Hækkerup, dómsmálaráðherra Danmerkur, segir málið grafalvarlegt og þá hefur meirihlutinn í danska þinginu þrýst á ríkisstjórnina að herða viðurlög við meðferð á persónuupplýsingum í Danmörku.
Tengdar fréttir Láku upplýsingum um ferðahagi danska kóngafólksins á Íslandi Uppljóstrarinn Edward Snowden birti opið bréf í kjölfar persónunjósna sem hafa átt sér stað í Danmörku síðastliðin fjögur ár, í það minnsta. Hann segir það engu máli skipta hvar aðili sé staddur, alltaf sé hætta á njósnum. 6. maí 2014 11:28 Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri fréttir „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Sjá meira
Láku upplýsingum um ferðahagi danska kóngafólksins á Íslandi Uppljóstrarinn Edward Snowden birti opið bréf í kjölfar persónunjósna sem hafa átt sér stað í Danmörku síðastliðin fjögur ár, í það minnsta. Hann segir það engu máli skipta hvar aðili sé staddur, alltaf sé hætta á njósnum. 6. maí 2014 11:28