Innlent

Stóra lekamálið leyst

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Leki í vatnslögn í Ólafsvík hefur valdið lágum þrýstingi á vatninu þar í allan vetur. Sagt er frá því á vef Skessuhorns að lekinn hafi fundist í gærkvöldi og íbúar geti nú átt von á auknum þrýstingi á ný.

Smári Björnsson, bæjartæknifræðingur Snæfellsbæjar, segir í samtali við Skessuhorn að um 40 til 50 lítrar hafi runnið af kerfinu á hverri sekúndu, sem teljist mjög mikið.

Lekinn fannst með hjálp fulltrúa Vatnsveitu Hafnarfjarðar sem fann lekann með hlustunartæki. Nýverið hófust framkvæmdir við að skipta út 1.600 metrum af vatnslögnum og vonandi náist að koma neysluvatnsmálum í gott horf fyrir haustið.

Nánar má lesa um málið á vef Skessuhorns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×