Markaþættir eftir allar umferðir Borgunarbikarsins 28. apríl 2014 15:00 Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, og Hjörvar Hafliðason, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 Sport, skrifa undir samninginn í dag. vísir/stefán
Í dag skrifuðu Borgun, KSÍ og Stöð 2 Sport undir nýjan samstarfssamning varðandi bikarkeppni KSÍ. Það verður því keppt um Borgunarbikarinn til ársins 2015. Stöð 2 Sport ætlar sér að sinna keppninni af fullum krafti. "Við verðum með þætti eftir allar umferðir karlamegin og svo sýnum við úrslitaleikinn hjá konunum," segir Hjörvar Hafliðason, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 Sport, en hann er sérstaklega spenntur fyrir þættinum um 32-liða úrslitin. "Við verðum með stóran þátt í 32-liða úrslitunum þar sem farið er á hina ótrúlegustu velli og lið sem aldrei koma í sjónvarp detta í sjónvarpið þar. Þessi þáttur um 32-liða úrslitin er oft skemmtilegasti þáttur ársins." Bikarúrslitaleikirnir voru áður í lok tímabils en hafa síðustu ár verið í lok ágúst og hefur það mælst vel fyrir. "Borgunarbikarúrslitaleikirnir í fyrra voru með skemmtilegustu leikjum sem við sýndum. Fram-Stjarnan var meiriháttar leikur og svo var sett aðsóknarmet á kvennaleiknum. Þessi ákvörðun hjá KSÍ að færa leikina fram í ágúst virðist hafa verið hárrétt." Borgun hefur verið lengi í samstarfi við KSÍ og forstjóri Borgunar, Haukur Oddsson, er hæstánægður með samstarfið. "Það eru fá tækifæri betri á Íslandi til þess að koma nafni fyrirtækisins á framfæri en þau sem tengjast knattspyrnu og bikarnum. Samstarfið hefur gengið mjög vel og það var eiginlega sjálfgefið að við myndum halda þessu áfram," segir Haukur. "Við höfum nú verið í samstarfi við KSÍ í að vera annan áratug. Það er ekkert sem bendir til annars en að þetta sé langtímasamkomulag. Við gefum ekki upp neinar peningaupphæðir í samningnum en við metum það þannig að sá ávinningur sem Borgun hefur af þessu samstarfi sé það mikill að við sjáum ekki eftir því fé sem fer í að vera með."Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, tilkynnti á fundinum í dag að liðið sem tapar bikarúrslitaleiknum á ekki lengur möguleika á Evrópusæti. Í staðinn verður það næsta lið í deildinni, sem ekki er með tryggt Evrópusæti, sem fær þátttökuréttinn ef sama félagið vinnur bæði deild og bikar. "Það er ný ákvörðun Knattspyrnusambands Evrópu og gildir fyrir allar deildir í Evrópu. Deildin fær því meira vægi en áður," segir Geir. Viðtöl við þremenningana má sjá hér að neðan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira