Erlent

Facebook gerir upp árið í skemmtilegu myndbandi

Atli Ísleifsson skrifar
Bill Gates tók þátt í ísfötuáskoruninni.
Bill Gates tók þátt í ísfötuáskoruninni. Mynd/Facebook
Facebook hefur birt myndband þar sem árið 2014 er gert upp. Í myndbandinu eru sýndar myndir af mörgum þeim atburðum sem upp úr standa á árinu, auk þess að margra þeirra sem féllu frá á árinu er minnst.

Í myndbandinu má meðal annars sjá myndir frá heimsmeistaramótinu í fótbolta, ísfötuáskorunum, frægum ræðum Malölu Yousafzai og Emmu Watson, fólk dansandi við „Happy“, lagi Pharrell Williams og fleira og fleira.

Myndbandið er tæpar tvær mínútur á lengd og má sjá í heild sinni að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×