Landhelgisgæslan mun skila norsku byssunum

Gæslan segist alla tíð hafa litið á byssurnar sem gjöf frá Norðmönnum en upplýsingafulltrúi norska hersins hefur hinsvegar sagt að undirritaður hafi verið kaupsamningur upp á 11,2 milljónir króna vegna þeirra. Í tilkynningu gæslunnar frá því í kvöld segir að Landhelgisgæslan hafi hingað til ekki þurft að greiða fyrir þau vopn sem hún hefur fengið frá Norðmönnum og öðrum nágrannaþjóðum á undanförnum áratugum. Gert hafi verið ráð fyrir að það sama ætti við í þessu tilfelli.
„Mikilvægt er að endurnýja reglulega bæði vopn og tækjakost Landhelgisgæslunnar. Vegna fjárskorts líður oft langur tími á milli þess sem það er gert,“ segir í tilkynningunni. „Kaup á nýrri vopnum í stað þeirra sem Landhelgisgæslan hefur haft til umráða telst ekki til þeirra forgangsverkefna sem stofnunin leggur mesta áherslu á.
Önnur verkefni, svo sem endurnýjun björgunarþyrlna og bættur rekstrargrundvöllur skipa, eru mun brýnni. Því kom ekki til greina að verja hluta af takmörkuðu fé Landhelgisgæslunnar til að kaupa vopnin af Norðmönnum.“
Tengdar fréttir

Fjölgun lögreglumanna mikilvægari en vopnavæðing
Lögreglukona og mannfræðingur segir umræðu um vopnaburð lögreglumanna á villigötum. Aðgengi að vopnum sé ekki til þess fallið að auka öryggi.

Það sem við vitum um byssurnar frá norska hernum
Landhelgisgæslan hafði milligöngu um afhendingu á 150 MP5 hríðskotarifflum frá norska hernum til ríkislögreglustjóra. Formenn stærstu stjórnarandstöðuflokkanna gagnrýna harðlega að svo mikið magn vopna hafi verið afhent lögreglunni án sérstaks samþykkis ráðherra eða umræðu í þinginu.

Landhelgisgæslan keypti hríðskotabyssurnar
Upplýsingafulltrúi norska hersins segir að Landhelgisgæslan hafi keypt byssurnar.

Norðmenn gáfu okkur hríðskotabyssurnar
Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, segir ekki verið að eyða peningum í skotvopn.

Lögregla ákveður sjálf hvar hún geymir hríðskotabyssurnar sínar
Ekki þarf að bera undir ráðherra eða alþingi hvort hríðskotabyssur séu geymdar í lögreglubílum.

Lögreglan ætlar ekki að borga fyrir vopnin
Samkvæmt kaupsamningi Landhelgisgæslunnar og norska hersins átti að greiða jafnvirði 11,5 milljóna króna fyrir 250 hríðskotabyssur. Ríkislögreglustjóri á von á að fá 150 byssur án endurgjalds. Gæslan segist ekki hafa greitt fyrir byssurnar.

Ráðherrar sverja af sér vélbyssur
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segist ekki haft nein afskipti af komu 250 MP5-hríðskotabyssa hingað til lands. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir að lögreglan hafi heimild til að endurnýja búnað sinn án þess að ráðherra skipti

Utanríkisráðherra segir eðlilegt að lögreglan endurnýi vopnabúnað
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir að utanríkisráðuneytið hafi ekki haft neina aðkomu að kaupum Landhelgisgæslunnar á 250 hríðskotabyssum frá Noregi.

Lögreglustjórar ákveða hvort hríðskotabyssur verði í lögreglubílum
Jón F. Bjartmarz segir að viðbótarfjárveiting til lögreglu hafi verið notað til uppbyggingar en ekki til byssukaupa. Skammbyssur eru í sumum lögreglubílum á landsbyggðinni en ekki á höfuðborgarsvæðinu.

Íslenska ríkið greiðir aðeins sendingarkostnaðinn af hríðskotabyssunum 150
Lögreglan hefur tekið 35 hríðskotabyssur í notkun á æfingasvæði lögreglunnar.

„Ég er ekki einu sinni með skotvopnaleyfi“
„Þegar ég stundaði nám í lögregluskólanum fór fram eina þjálfun mín í skotvopnum og var hún í mýflugumynd.“

Segja að aldrei hafi farið fram neinar greiðslur fyrir byssurnar
Landhelgisgæslan hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að fram kom í fjölmiðlum í dag að hún hefði í raun keypt 250 byssur frá Norðmönnum.

„Ég get ekki sagt um það hvort þessar MP5 byssur eru frá okkur“
"Landhelgisgæslan hefur verið vopnuð frá upphafi en að öðru leyti munum við ekki tjá okkur um fjölda, stærð eða tegundir vopna,“ segir Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar.

Tollskylt hafi vopn verið keypt
Tollstjóri hefur innsiglað norsku hríðskotabyssurnar vegna óvissu um hvort þær eru keyptar eða gefnar.

Höfum fengið 310 hríðskotabyssur frá norska hernum frá 2011
Ríkislögreglustjóri óskaði eftir vopnum frá Norðmönnum en Landhelgisgæslan hafði milligöngu um afhendingu vopnanna.