Gosmökkurinn stefnir í vestur og suðvestur í dag 7. október 2014 07:17 Gosmökkurinn frá Holuhrauni hefur áhrif víða um land. Vísir/Egill Aðalsteinsson
Búast má við að gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni berist í vestur og suðvestur frá gosstöðvunum allt að Snæfellsnesi í norðri og Reykjanesi í suðri og því gæti mengunar orðið vart á höfuðborgarsvæðinu, annan daginn í röð. Um sjöleytið í gærkvöldi mældust rúmlega 600 míkrógrömm af brennisteinsdíoxíði í rúmmetra í loftmælingastöðinni við Dalsmára í Kópavogi. Sá styrkur getur haft áhrif á þá sem stríða við öndunarerfiðleika. Mengunar frá gosinu varð vart allt norður í Árneshrepp á Ströndum í gær. Frá klukkan sjö í gærkvöldi hafa mælst tæplega 30 skjálftar við Bárðarbungu þar af rúmlega helmingur frá miðnætti. Þrír skjálftar voru stærri en fjögur stig, sá stærsti reið yfir rétt fyrir klukkan fjögur í nótt og mældist hann fimm stig. Örfáir skjálftar hafa mælst í bergganginum. Sá stærsti á þeim slóðum varð kl. 19:29 í gærkvöldi upp á 2,7 stig. Hvasst hefur verið á svæðinu og hefur það hugsanlega áhrif á fjölda smærri skjálfta. Dregið hefur úr vindi eftir því sem liðið hefur á nóttina. Ekki sést til gossins á vefmyndavélum þar sem skyggni er mjög takmarkað eins og er en það sást til gossins um tíma í nótt í gegnum vefmyndavélar og þá virtist svipaður gangur í því og undanfarið.Mengunarkort fyrir þriðjudag.Mengunarkort fyrir miðvikudag.
Bárðarbunga Veður Mest lesið Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Veður Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Innlent Frakkar fjölga kjarnavopnum Erlent Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Fleiri fréttir Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Sjá meira