Innlent

Sigmundur Davíð: Leyfa átti Hönnu Birnu að bregðast við

Kjartan Atli Kjartansson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra telur ekki líklegt að lekamálið muni hafa slæm áhrif á störf ríkisstjórnarinnar til lengri tíma litið. Á fundi sínum í dag ákvað ríkisstjórn Íslands að tillögu innanríkisráðherra að færa málefni dómstóla lögreglu og ákæruvalds undan ábyrgðarsviði hennar sem innanríkisráðherra. Sett verður á fót nýtt embætti dómmálaráðherra í innanríkisráðuneytinu, og mun forsætisráðherra gegna því embætti samhliða störfum sínum sem forsætisráðherra, þar til annað verður ákveðið.

Forsætisráðherra segist hafa tekið þá ákvörðun að taka við málefnum dómstóla lögreglu og ákæruvalds í samráði við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra.

„Þetta fellur ágætlega að því sem kveðið er á um stjórnarráðslögunum að eðlislík málefni eigi heima saman þó það hefði ekkert útilokað að annar ráðherra hefði farið þarna inn,“ sagði Sigmundur Davíð á fundi með blaðamönnum við ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu síðdegis.

Aðspurður hvort hann hafi ekki nóg á sinni könnu segir Sigmundur Davíð að hann reikni ekki með því að þurfa að sinna hlutverkinu lengi. Framundan séu breytingar í stjórnarráðinu.

„Eitt af því sem þar er sérstaklega til skoðunar er að skipta aftur upp innanríkisráðuneytinu og stofna aftur sérstakt dómsmálaráðuneyti,“ segir Sigmundur Davíð. Hann reikni með því að það muni taka tiltölulega stuttan tíma.

Sigmundur Davíð gagnrýndi umboðsmann fyrir að hafa ekki gefið Hönnu Birnu frest til þess að gera athugasemdir við bréf sitt. Umboðsmaður sendi Hönnu Birnu bréfið í gær og óskaði hún eftir að fá að gera athugasemdir áður en það yrði gert opinbert. Þeirri beiðni neitaði umboðsmaður.

„Það eru mannréttindi allra, þar með talið ráðherra, að hafa andmælarétt þegar þeir eru sakaðir um hluti.“

Sigmundur Davíð fyrir utan ráðherrabústaðinn í dag.Vísir/GVA
Telur málið ekki skaða ríkisstjórnarsamstarfið

Sigmundur Davíð telur að Hanna Birna skaði ekki ríkisstjórnina á meðan hún hugsi sig um hvort hún hætti í stjórnmálum. Sigmundur Davíð telur málið ekki skaða ímynd ríkisstjórnarinnar en segir það hafa sóað dýrmætum tíma hennar til þess að

„Skaðinn liggur meðal annars í því í að það fer heilmikill tími í að ræða mál sem varðar ekki landsins gagn og nauðsynjar ef svo má segja. Það er að segja þau tækifæri sem við stöndum frammi fyrir. En hvað varðar áhrif til lengri tíma litið, þá held ég þetta ekki þurfa að hafa mikil neikvæð áhrif.“


Tengdar fréttir

Stefán segir aðstoðarmenn Hönnu Birnu hafa beðið sig um að neita frétt DV

Stefán Eiríksson, fráfarandi lögreglustjóri, tjáði Umboðsmanni Alþingis að aðstoðarmenn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, þau Gísli Freyr Valdórsson og Þórey Vilhelmsdóttir, hafi haft samband við sig og beðið hann um að neita fréttaflutningi DV um samskipti sín við ráðherra.

Hanna Birna segist ekki hafa gert neitt rangt

"Það á aldrei að vera þannig að stjórnmálamaður velti fyrir sér að segja af sér embætti ef hann hefur ekki gert neitt rangt,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, Innanríkisráðherra, í beinni útsendingu í þættinum Ísland í dag í kvöld. Yfirlýsing í kjölfar þriðja bréfs Umboðsmanns Alþingis til hennar hefur vakið mikla athygli í dag.

Bjarni ósáttur við umboðsmann

Bjarni Benediktsson, gagnrýnir Umboðsmann Alþingis fyrir að hafa ekki gefið innanríkisráðherra færi á að svara fyrir sig áður en athugasemdir hans rötuðu í fjölmiðla.

Segir Hönnu Birnu hafa spurt út í samskipti sín við umboðsmann Alþingis

Stefán Eiríksson segir að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hafi spurt sig hvort hann hafi haft samband við umboðsmann Alþingis vegna fyrirspurna umboðsmanns til Hönnu Birnu vegna gruns um óeðlileg samskipti þeirra á milli vegna lögreglurannsóknar á lekamálinu svokallaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×