Innlent

Segir Hönnu Birnu hafa spurt út í samskipti sín við umboðsmann Alþingis

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hanna Birna.
Hanna Birna. Vísir/Vilhelm
Stefán Eiríksson segir að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hafi spurt sig hvort hann hafi haft samband við umboðsmann Alþingis vegna fyrirspurna umboðsmanns til Hönnu Birnu vegna gruns um óeðlileg samskipti þeirra á milli vegna lögreglurannsóknar á lekamálinu svokallaða.

Þetta kemur farm í bréfi umboðsmanns Alþingis til Hönnu Birnu. Þar segir:

„Í tilvitnaðri lýsingu lögreglustjórans í IV. kafla kemur fram að eftir að ég sendi yður bréf, dags. 30 júlí sl., þar sem ég greindi frá því að ég hefði rætt við lögreglustjórann um þetta mál, hafið þér haft samband við hann, m.a. til að spyrja um hvort hann hefði haft samband við umboðsmann Alþingis „og eitthvað svona fleira í tengslum við þetta allt saman.“

Í 7. gr. áður tilvitnaðra siðareglna ráðherra nr. 360/2011 segir að ráðherra skuli sýna samstarfsvilja séu störf hans tekin til skoðunar af hálfu Alþingis eða eftirlitsstofnana þess. Í greininni er jafnframt fjallað um viðbrögð við ábendingum starfsmanna um siðferðislega ámælisvert eða ólögmætt athæfi í ráðuneyti hans og tekið fram að ráðherra gæti þess að starfsmenn sem benda á slíkt gjaldi ekki fyrir það. Lög nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, kveða á um sjálfstæði hans til að afla upplýsinga og ganga um starfshætti og ákvarðanir í stjórnsýslunni. Eins og nefnd ákvæði siðareglnanna bera með sér hefur verið lögð aukin áhersla á að tryggja að þeir starfsmenn í stjórnsýslunni, sem greina frá málum sem eftirlitsaðilar telja tilefni til að skoða nánar, geti gert það óháð afskiptum og eftirmálum af hálfu yfirmanna og séu ekki látnir gjalda fyrir slíkt.

Í því efni skiptir máli að þeir opinberu starfsmenn/einstaklingar sem látið hafa umboðsmanni Alþingis í té upplýsingar sem verða honum tilefni til fyrirspurna sé að þessu leyti veitt skjól frá yfirmönnum sínum vegna athugunar umboðsmanns. Ég óska eftir upplýsingum yðar um hvort það sé rétt að þér hafið átt umrætt samtal við lögreglustjórann og ef svo er hvernig þér teljið það samrýmast því sem fram kemur í tilvitnuðu ákvæði siðareglna ráðherra og lögum um umboðsmann Alþingis.“



Tengdar fréttir

Nýr Seðlabankastjóri kynntur í dag

Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjáramálaráðherra, mun tilkynna eftir hádegi í dag hver muni skipa embætti Seðlabankastjóra næstu fimm árin samkvæmt heimildum fréttastofu.

Píratar vilja fund um lekamálið

Þingmaður Pírata hefur óskað eftir því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd leiti svara við því hvort ráðherra hafi haft óeðlileg afskipti af störfum lögreglunnar.

„Protected by a silver spoon…“

Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóri, er klár maður eins og hann hefur sannað í Útsvari. Líklega hefur honum þó aldrei tekist betur upp en með birtingu Bítlalagsins Bathroom Window á Twitter í vikunni.

Stefán segir aðstoðarmenn Hönnu Birnu hafa beðið sig um að neita frétt DV

Stefán Eiríksson, fráfarandi lögreglustjóri, tjáði Umboðsmanni Alþingis að aðstoðarmenn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, þau Gísli Freyr Valdórsson og Þórey Vilhelmsdóttir, hafi haft samband við sig og beðið hann um að neita fréttaflutningi DV um samskipti sín við ráðherra.

Stefán Eiríksson tvíræður á Twitter

Eitt af uppáhalds Bítlalögum fyrrverandi lögreglustjóra fjallar um mann sem hættir í lögreglunni og samskipti hans við konu með silfurskeið í munni.

Íhuga að leggja fram vantrauststillögu á Hönnu Birnu

Þingmenn stjórnarandstöðunnar íhuga að leggja fram vantrauststillögu á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra þegar þing kemur saman í haust. Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá ráðherra varðandi meint afskipti hennar af rannsókn lögreglu á lekamálinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×