„Í málinu öllu saman hef ég auðvitað gert pólitísk mistök en ég hef ekki brotið af mér með neinum hætti. Ég hef ekki gert neitt sem samviskan mín segir mér að ég hafi gert rangt. Ég hefði auðvitað í pólitísku samhengi gert margt öðruvísi, ef ég hefði vitað hvernig málið myndi liggja.“
Hanna Birna segist vera í þeirri óþægilegu stöðu að engar verklagsreglur séu til þegar kæra gegn ráðherra og ráðuneyti komi fram.
„Mín staða er sú að ég hef verið í nokkra mánuði hugsi yfir stjórnmálunum, ekki stöðu minni sem ráðherra, heldur hefur mér liðið persónulega og pólitískt eins og ég væri að bregðast. Vegna þess að ég hef ekki getað svarað málinu, né útskýrt það af því að ég veit ekkert hvað gerðist.“
Ráðherra segist íhuga að hætta í stjórnmálum í kjölfar bréfs umboðsmanns Alþingis sem hún segir hafa fyrirfram ákveðnar skoðanir í málinu. Hún segir ekkert nýtt koma fram í bréfinu en sparar ekki stóru orðin í garð umboðsmanns. Hún segist bæði „hugsi og sorgmædd“ yfir því hvernig ýmsar stofnanir komist upp með að setja fram dylgjur í garð hennar.
„Mér hefur fundist ég hafa verið að verja kerfi sem ég er ekki sátt við. Ég fór í pólitík til þess að verja almenning, ekki til þess að verja kerfi. Með sjálfum mér hef ég verið að hugsa hvort það sé kannski einhver annar staður betri til þess að breyta samfélaginu.“

„Ég er ekki búin að taka ákvörðun um það. Ég mun ekki segja af sér embætti sem ráðherra fyrir eitthvað moldviðri í kringum mál sem er sannarlega óheppilegt.“
„Það liggur fyrir að það fór fram ákveðin rannsókn. Það liggur fyrir að ríkissaksóknari hefur ákveðið að ákæra í málinu. Það eitt segir okkur að ríkissaksóknari taldi rannsóknina, án allra þvingana, fullkomlega eðlilega. Það liggur líka fyrir að umboðsmaður kýs í fyrsta skipti að kalla menn til yfirheyrslu og birta það opinberlega án þess að gefa mönnum andmælarétt. Hann talaði aldrei við mig um málið.“
Hanna Birna segir að þegar hún tali um pólitískan leik þá eigi hún við að málið hafi einfaldlega átt að fá að klárast.
„Mér finnst umboðsmaður fella dóm áður en rannsókn málsins klárast.“
Bréf umboðsmanns er afar ítarlegt, 23 blaðsíður, þar sem meðal annars eru rakin samskipti Hönnu Birnu við Stefán Eiríksson, fráfarandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Kemur meðal annars fram að Stefán hafi sjálfur leitað á náðir ríkissaksóknara í kjölfar fjölmargra spurninga sem ráðherra hafði vegna rannsóknar lögreglu.
„Menn eru að ræða um samskipti mín við Stefán, Stefán er fullorðinn maður og hann er lögreglustjóri í Reykjavík. Við ræddum það margsinnis hvernig við ættum að hafa þetta. Stefán ávarpaði það aldrei við mig að þetta væri fyrir honum með einhverjum hætti óeðlilegt. Miklu frekar lögðum við áherslu á það að vinna þetta svona, einmitt vegna þess að ég sem ráðherra bý yfir mjög margþættum trúnaðarupplýsingum, ekki bara um einn hælisleitanda, heldur um allt samfélagið.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.