Jörðin gleypti hvolp á Vatnsleysuströnd Kjartan Atli Kjartansson skrifar 4. maí 2014 10:36 „
Hún var þarna, tveimur til þremur skrefum á undan mér og svo hvarf hún bara ofan í jörðina,“ segir Anna Hermannsdóttir frá Hafnarfirði sem horfði á fjögurra mánaða gamlan hvolp hverfa ofan í jörðina á landi við Vatnsleysuströnd á mánudaginn. Hvolpurinn, sem var nefndur Jackie, sogaðist ofan í holu sem var um 35 sentímetrar í þvermál, að sögn Önnu. Holan var full af vatni og komst hvolpurinn því ekki lifandi frá þessu óhugnanlega atviki. Hvolpurinn var fastur í holunni í sólarhring. Anna segir holuna greinilega hafa verið manngerða og telur að hún tengist tilraunum til þess að bora fyrir heitu vatni. Anna vakti athygli á málinu á vefnum Gaflari.is. „Þetta var mjög óhugnalegt. Ég fór þarna með Jackie og fjölskyldu hennar. Þetta svæði er skráð sem fólkvangur og ég ætlaði að leyfa hundunum að vera þarna lausum,“ segir Anna í samtali við Vísi. Hún er hundaræktandi og hefur vanið komur sínar á þetta svæði í fjölda ára. Landið sem Anna fór með hundana á heitir Höskuldarvellir og er á Vatnsleysuströnd. Hún segir mikilvægt að leyfa hvolpum að ganga um lausir í náttúrunni, það sé hluti af uppeldi þeirra. „Ég hélt að þetta væri alveg öruggt svæði. Holan var hulin grasi og því brá mér rosalega þegar Jackie sogaðist þarna niður. Ég hélt í raun fyrst að þetta væri bara gjóta,“ útskýrir hún. Hún segir fjölskyldu Jackie hafa brugðist illa við. „Hundarnir urðu alveg vitstola og söfnuðust saman við holuna geltandi. Ég þurfti því að halda aftur af þeim á meðan ég stakk hendinni ofan í holuna.“ Anna var komin með alla höndina ofan í holuna þegar það rann upp fyrir henni að hún myndi ekki ná Jackie upp úr holunni. Hún hélt því heim í Hafnarfjörðinn með hundana og bað manninn sinn um aðstoð. „Við náðum í hrífur og prik, því mér fannst augljóst að holan var ansi djúp og breið. Miklu breiðari en opið. Lengsta prikið sem við sóttum var 170 sentímetra langt. Það nægði ekki til þess að ná til botns í holunni og ekki einu sinni til hliðanna.“ Ekkert bólaði því á hvolpinum Jackie.Hér má sjá holuna sem er um 35 sentímetrar í þvermál.Sóttu lengra prik Anna segir þau hjónin hafa farið heim eftir talsvert langan tíma og fjölda tilrauna til þess að ná hvolpinum litla upp úr holunni. Daginn eftir fór maður Önnu svo aftur að holunni með þriggja metra langt prik. „Þá fyrst fann hann hliðar á holunni. Hún er því alveg ofboðslega breið, þessi hola.“ Anna segir manninn sinn hafa verið að í rúman klukkutíma, þegar hann loks náði Jackie upp úr holunni „Hún var drulluskítug. Vatnið þarna er ógeðslegt. Hún hefur líklega gleypt fullt af vatni og drukknað um leið og hún féll ofan í,“ útskýrir Anna. Anna segir þetta hafa verið átakanlegan sólarhring og eitthvað sem enginn dýravinur hugsar sér. „Þetta var bara hræðilegt í einu orði,“ útskýrir hún.Jackie var rétt rúmir 50 sentímetrar að lengd.Ekki sofið í þrjá daga Anna tilkynnti lögreglunni á Suðurnesjum strax frá þessum atburði. Hún vildi að holunni yrði lokað. „Já, ég hef heyrt að farið sé með leikskólabörn á þetta svæði, enda er þetta fólkvangur. Þetta hefði auðveldlega getað verið barn sem hefði sogast þarna niður.“ Anna segir enn ekkert hafa verið gert í málinu, þrátt fyrir að nokkrir dagar séu komnir síðan hún tilkynnti lögreglu um málið. „Ég ætla að fara til lögreglunnar eftir helgi og athuga hvar málið stendur. Holan er ennþá þarna og alveg jafn hættuleg. Maðurinn hefur þó reynt að loka henni með einhverju drasli sem hann fann þarna í kring. Tunnum og einhverju. Svo fleiri lendi ekki í þessu. Þetta er alveg hryllilegt,“ útskýrir hún. Anna segir það skelfilegt að hafa horft svona á eftir hvolpinum hverfa ofan í jörðina. „Ég gat varla lokað augunum í nokkra daga eftir að þetta gerðist. Ég sá þetta þetta bara alltaf gerast aftur og aftur. Ég gat varla sofið í þrjár nætur eftir þetta,“ segir Anna. Landið við Höskuldarvelli var gert að fólkvangi árið 1975, en er samt sem áður í einkaeign. Anna hefur reynt að hafa upp á landeigendum án árangurs. Hún hvetur þá til þess að loka holunni. Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Fleiri fréttir Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Sjá meira