Innlent

Herðubreiðartögl nötra

Gissur Sigurðsson skrifar
Skjálftarnir í nótt voru þó mun vægari en í gær, þegar einn mældist upp á 3,9 stig og fannst meðal annars á Akureyri.
Skjálftarnir í nótt voru þó mun vægari en í gær, þegar einn mældist upp á 3,9 stig og fannst meðal annars á Akureyri. MYND/BJÖRN BÖÐVARSSON
Jarðskjálftahrinan við Herðubreiðartögl hélt áfram í nótt.

Skjálftarnir í nótt voru þó mun vægari en í gær, þegar einn mældist upp á 3,9 stig og fannst meðal annars á Akureyri. Síðustu sólarhringa hafa yfir 500 skjálftar mælst á svæðinu og búast jarðvísindamenn við að eitthvað áframhald verði á hrinunni og að styrkur sumra geti farið yfir þrjú stig.

Skjálftarnir eru á eldgosabeltinu norðan Vatnajökuls, en eins og staðan er núna sjá vísindamenn engin mælanleg merki um  að hrinan muni leiða til eldgoss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×